Fyrstu mæðurnar sem eru samtímis í hópi tíu bestu í heimi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2026 16:46 Svissneska tenniskonan Belinda Bencic og dóttir hennar Bella. Bencic er kominn í hóp þeirra tíu bestu i heimi. @belindabencic Belinda Bencic og Elina Svitolina hafa skráð nafn sitt á spjöld sögunnar með því að verða fyrstu mæðurnar til að vera samtímis á topp tíu á heimslistanum.
Hin 28 ára gamla Bencic eignaðist dóttur sína Bellu í apríl 2024 og svissneski leikmaðurinn hefur færst upp um eitt sæti í níunda sæti á nýjasta styrkleikalista WTA eftir ellefu mánaða fæðingarorlof. Hin 31 árs gamla Svitolina eignaðist dótturina Skai í október 2022 en hún hefur færst upp um tvö sæti í það tíunda eftir að úkraínski leikmaðurinn komst í undanúrslit á Opna ástralska meistaramótinu í síðasta mánuði. History makers 💫 For the first time EVER, two moms are ranked inside the PIF WTA Top 10 👏 #PIFWTARankings | @PIF_en pic.twitter.com/mC9QXEhBxp— wta (@WTA) February 2, 2026 Nýbakaðar mæður sem snúa aftur á mótaröðina geta notað fyrri styrkleikalista sinn til að komast inn á tólf mót á þriggja ára tímabili frá fæðingu barns síns. Bencic sagði að það að keppa aftur á hæsta stigi eftir fæðingarorlof væri eitthvað sem hún væri „ótrúlega stolt af“. „Mjög fáir vita eða hafa upplifað hversu erfitt þetta ferli er en fjölskylda mín, teymið mitt og ég höfum lagt alla okkar orku, vinnu og alúð í það til að ná þessu markmiði,“ sagði fyrrverandi Ólympíumeistarinn Bencic. Svitolina, sem hefur unnið nítján titla í einliðaleik og náði hæst þriðja sæti á heimslistanum árið 2018, sagði að það þýddi svo mikið fyrir hana að komast aftur á topp 10 sem móðir. „Ég er stolt af baráttu minni og seiglu og ég get ekki þakkað aðdáendum nóg fyrir ótrúlegan stuðning,“ sagði Svitolina en hún er gift franska leikmanninum Gael Monfils. Síðasta sumar bætti WTA við nýrri reglu þannig að kvenkyns leikmenn sem vilja frysta egg eða fósturvísa, til þess að geta stofnað fjölskyldu síðar, fá einnig styrkleikalista sinn varinn af mótaröðinni. Belinda Bencic returns to the Top 10 🤩 pic.twitter.com/VS1Dcr4Q2Y— wta (@WTA) February 2, 2026 Á styrkleikalista karla hjá ATP tekur Novak Djokovic við þriðja sætinu af Alexander Zverev eftir að Serbinn komst í úrslitaleikinn í Melbourne. Hinn 38 ára gamli Djokovic stefndi að því að vinna sinn 25. risatitil á sunnudag, sem hefði verið met, en tapaði í fjórum settum fyrir Carlos Alcaraz. Spánverjinn heldur hins vegar fyrsta sætinu eftir að hafa orðið yngsti maðurinn til að fullkomna risaslemmuferil sinn, 22 ára að aldri, með sínum sjöunda risatitli. Þjóðverjinn Zverev, sem tapaði fyrir Alcaraz í undanúrslitum, fellur niður í fjórða sæti, á meðan Ítalinn Jannik Sinner er áfram í öðru sæti eftir tap sitt í undanúrslitum gegn Djokovic.
Tennis Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Sjá meira