Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 10:02 Dedrick Basile var með 13 stig og 8 stoðsendingar á móti Stjörnunni en hitti aðeins úr 29 prósent skota sinna (4 af 14). Talsverð umræða var um framtíð hans á Króknum. Vísir/Diego Sérfræðingarnir í Bónus Körfuboltakvöldi veltu fyrir sér stöðinni á Sauðárkróki eftir vandræðalega frammistöðu Stólanna í síðustu leikjum. Hversu miklar áhyggjur þarf Tindastólsfólk að hafa?
Tindastólsliðið átti eina sína verstu viku á síðustu árum í síðustu viku þegar liðið tapaði fyrst fyrir Keflavík og steinlá síðan í toppslagnum á móti Stjörnunni nokkrum dögum síðar. Fjögur töpuð stig í baráttunni um deildarmeistaratitilinn sem er nánast runninn þeim úr greipum. „Arnar Guðjónsson hefur náttúrulega áhyggjur af þessu öllu saman, út af að hann er náttúrulega bara þjálfari liðsins. Þjálfarar hafa náttúrulega bara almennt mjög miklar áhyggjur. Það var bara mjög skrítin orka yfir þessu liði í þessum leik og það var líka mjög skrítin orka yfir þessu liði á móti Keflavík,“ sagði Stefán Árni Pálsson. Klippa: Bónus Körfuboltakvöld: Andleysi hjá Tindastól Tindastóll fékk á sig 35 stig í fyrsta leikhluta, var 24 stigum undir í hálfleik, 63-39, og tapaði að lokum með 38 stigum, 125-87, í uppgjöri liðanna sem fóru í lokaúrslitin í fyrra. „Þeir segjast ekkert vera þreyttir út af Evrópukeppninni og ég trúi því alveg. En hvað er að,“ spurði Stefán Árni sérfræðing sinn Hlyn Bæringsson. Slæm líkamstjáning „Hvað er að? Það var sjáanlegur skortur á grimmd og ákafa í leik liðsins. Þeir náðu bara ekkert að svara ákveðninni hjá Stjörnunni, bara aldrei,“ sagði Hlynur. „Það voru líka slæmar líkamstjáningar hjá leikmönnum liðsins, þannig að menn voru með hausinn niður, fljótir að gefast upp, fórnuðu höndum og kenndu öðrum um. Það getur gerst á bestu bæjum þegar þetta er svona slæmt,“ sagði Hlynur. Umræða um að það sé verið að skipta út erlendu leikmönnum liðsins gæti verið að hafa áhrif á liðið að mati Hlyns. Þeir bara einfaldlega löbbuðu yfir þá „Áran var ekki sérstök og mögulega er það vegna þessarar umræðu sem hefur komið upp, óheppileg eins og hún er. Ég veit ekki hvort það hafi eitthvað komist þarna inn því ég geri mér ekki grein fyrir því. Þannig að það var eitthvað ‚off' við liðið,“ sagði Hlynur. Hann nefnir Adomas Drungilas sem leikmann sem var klár í slaginn. „Það voru bara of fáir sem voru tilbúnir að mæta orkunni sem Stjarnan kom með og þeir bara einfaldlega löbbuðu yfir þá,“ sagði Hlynur. Stefán Árni spurði Magnús Þór Gunnarsson út í líkamstjáninguna hjá Stólunum. Sjálfkrafa dregur það hina leikmennina með niður „Hún skiptir bara gríðarlega miklu máli og það er svo leiðinlegt þegar þínir bestu hestar fara að lyfta öxlum, vera fúlir og eitthvað svona, þá sjálfkrafa dregur það hina leikmennina með sér niður,“ sagði Magnús. „Það er ekkert meira pirrandi heldur en það. Þá þarf einhver af hinum, Arnar, Sigtryggur, Pétur eða Júlíus, að bauna yfir þessa útlendinga og segja þeim að rífa hausinn út úr rassgatinu á sér og halda áfram. En það gerðist ekkert. Það fóru bara allir í fýlu saman og þar er óafsakanlegt hjá Tindastól. Þeir voru hrikalega lélegir í dag,“ sagði Magnús. Hann getur ekki unnið neitt En hversu miklar áhyggjur hefur Arnar þjálfari af stöðunni? „Við erum búin að tala um [Dedrick] Basile í mörg ár um að hann geti ekki unnið neitt og ég held að það sé bara að sýna sig núna að þetta er ekki rétti leikmaðurinn fyrir þetta lið,“ sagði Magnús Þór og Hlynur tók undir það. „Ég held það sé augljóst. Ég held að Arnar væri alveg til í að glugginn væri opinn aðeins lengur,“ sagði Hlynur. Dedrick Basile var með 13 stig og 8 stoðsendingar á móti Stjörnunni en hitti aðeins úr 29 prósent skota sinna (4 af 14). Það má hlusta á alla umræðuna um vandræði Stólanna hér fyrir ofan. Næst á dagskrá hjá þeim er undanúrslitaleikur á móti KR í bikarnum í Smáranum í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20.00.
Bónus-deild karla Körfuboltakvöld Tindastóll Mest lesið Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Körfubolti „Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Fótbolti „Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Handbolti Íslensk landsliðskona til nítjánfaldra Noregsmeistara Handbolti Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Enski boltinn Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Fótbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Fleiri fréttir „Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Martin fagnaði mikilvægum sigri eftir mistök toppliðsins LeBron James valinn í Stjörnuleikinn 22. árið í röð Finni á Krókinn og Þór skiptir um Kana Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Ekkert lát á sigurgöngu Tryggva og félaga Paul George dæmdur í 25 leikja bann Sparkaði í og trampaði á mótherja Pargo snýr aftur og klárar tímabilið með Grindavík Uppgjörið: Þór Þ - Keflavík 78 - 98 | Keflavíkurhraðlestin brunaði heim með öll stigin Shabazz látinn fara frá Grindavík Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 125-87 | Meistararnir völtuðu yfir Stólana „Þetta gefur mér vonir um að við getum barist um þetta“ Uppgjörið: Njarðvík - Álftanes 101-96| Gríðarlega mikilvægur sigur fyrir heimamenn Uppgjör og viðtöl: ÍA - KR 98-120 | Fjórði sigur KR-inga í röð Uppgjör og viðtöl: Grindavík - Valur 78-67 | Áfram fullkomnir á heimavelli Uppgjör og viðtal: Ármann - ÍR 74-109 | Fóru létt með kanalausa Ármenninga Valur og KR styrkja sig rétt fyrir lok gluggans Uppgjörið: Valur - Haukar 90-97 | Fimm í röð hjá Haukum Umfjöllun og viðtöl: Grindavík 74-79 KR | Risastór sigur KR Doncic skoraði 46 stig en þjálfarinn segir hann reyna á þolinmæðina Uppgjörið: Keflavík - Tindastóll 98-81 | Keflvíkingar skelltu Stólunum „Miklu skemmtilegra að spila körfubolta þegar fólkið er í húsinu“ Martin fagnaði eftir framlengingu Rose hengdur upp í rjáfur í Chicago Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Sjá meira
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti