Af hverju endurbætt Suðurlandsbraut? Atli Björn Levy skrifar 5. febrúar 2026 08:01 Götur taka pláss. Til stendur að breyta nýtingu tveggja akreina, sem eru nú nýttar fyrir bílaumferð, þannig að þær þjóni eingöngu almenningssamgöngum og neyðarumferð. Umhverfismat sýnir að slík breyting skilar sér í betra og grænna borgarumhverfi og bættum lífsgæðum. Með því að halda uppi mikilli tíðni ferða í almenningssamgöngum eykst einnig skilvirkni í fólksflutningum. Deiliskipulagið sem nú er komið í auglýsingu er útfærsla á stefnu sem hefur legið fyrir í aðalskipulagi Reykjavíkur 2010–2030 sem var samþykkt fyrir þrettán árum. Að byggja upp skilvirkara samgöngukerfi, styðja virka ferðamáta og skapa heilbrigðara borgarumhverfi til framtíðar. Suðurlandsbraut verður samgönguás virkra ferðamáta Umbreyting Suðurlandsbrautar byggir á því að endurhanna götuna sem breiðgötu og leggja miðjusett sérrými fyrir almenningssamgöngur. Markmiðin eru aukið öryggi og aðgengi gangandi og hjólandi, hámörkun flutningsgetu fólks og minni neikvæð áhrif á land og græn svæði. Suðurlandsbraut er lykilkafli í fyrstu lotu Borgarlínu og tengir saman mikilvæg núverandi atvinnu- og íbúðahverfi og ný hverfi austan Elliðaáa sem alls munu rúma um 40 þús. íbúa. Þegar hágæða almenningssamgöngur fá sérstöðu í borgum skapast raunhæfur valkostur við einkabílinn – sem getur skilað sér í minni bílaumferð en ella,bættum loftgæðum, minni umferðarhávaða og betra nærumhverfi. Umbreytingin snýst um að gera borgina heilsusamlegri, öruggari og skilvirkari fyrir virka ferðamáta. Með því að dreifa álagi á fleiri ferðamáta búum við til meira rými á götunum fyrir bílaumferð í einka- og atvinnuskyni, öll græða. Miklabraut og Sæbraut styrkjast sem stofnbrautir Í Samgöngusáttmálanum er, líkt og í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins og aðalskipulagi Reykjavíkur, gert ráð fyrir að Suðurlandsbraut verði hluti af samgöngu- og þróunarás þar sem öllum ferðamátum er gert jafn hátt undir höfði. Í sáttmálanum er einnig gert ráð fyrir að Miklabraut eflist sem stofnbraut og að bílaumferð aki bæði á yfirborði og einnig um göng milli Skeifunnar og Vatnsmýrarinnar, og að Sæbraut verði lögð í stokk frá Vesturlandsvegi og norður fyrir Skeiðarvog. Bæði þessi stóru stofnvegaverkefni munu hafa umtalsverð áhrif á flæði bílaumferðar og leiðaval fólks. Útfærslan á Suðurlandsbraut er því hvorki tilviljanakennd né illa ígrunduð, heldur rökrétt framhald af þeirri stefnu sem mörkuð er í skipulagsáætlunum undangenginna áratuga og Samgöngusáttmálanum. Fjórar akreinar og miðjusettar almenningssamgöngur Miðjusetta leiðin með fjórum akreinum í heild er skynsamleg vegna þess að hún nýtir plássið vel og býr að auki til pláss fyrir hjóla- og göngustíg sunnan götunnar sem verður hluti af framkvæmdinni. Árið 2021 voru þrjár mismunandi lausnir (snið) skoðaðar (bls. 14 í frumdragaskýrslu fyrstu lotu Borgarlínu) þar sem þessi lausn kom best út. Meginþættir sem lágu því mati til grundvallar voru áhrif framkvæmda, greiðfærni ferðamáta, kolefnishlutleysi samfélags, framkvæmda- og rekstrarkostnaður, umferðaröryggi og þróunarmöguleikar. Miðjusetningin nýtir betur það götusnið sem þegar er til staðar og ýtir ekki undir þörf á frekari fækkun stæða eða útvíkkun inn í Laugardal með kostnaðarsömum fyllingum, fláum og stoðveggjum með auknum varanlegum umhverfisáhrifum. Af hverju miðjusett sérrými ? 1) Öruggari þveranir og betra aðgengi að stöðvumÞegar stöðvar fyrir almenningssamgöngur eru í miðju geta farþegar nálgast þær frá báðum hliðum og þveranir verða styttri og einfaldari. Þá fækkar bílaakreinum sem þarf að fara yfir í einu, semer mjög mikilvægt fyrir umferðaröryggi, og ferðaleiðir verða skýrari – sem dregur úr áhættu og styður grunnforsendur hágæða almenningssamgangna og forgang virkra ferðamáta. 2) Samræmi og læsileiki eftir endilangri BorgarlínuMiðlæg lausn styrkir samfellu leiðarinnar og tengir betur við aðliggjandi kafla (t.d. í átt að Glæsibæ, Kringlumýrarbraut og Laugavegi). Hún einfaldar gatnamót og flæði samanborið við jaðarlæga lausn og gerir kerfið skiljanlegra fyrir notendur – sem skiptir miklu þegar markmiðið er að fleiri treysti á almenningssamgöngur daglega. 3) Minna rask og minni varanleg umhverfisáhrifÁ þessu svæði eru landhæðir og aðstæður þannig að jaðarlæg lausn myndi ýta undir útvíkkun inn í Laugardal, fyllingar, fláa og stoðveggi. Miðjusett lausn dregur úr slíku raski, verndar betur græn svæði og trjágróður og minnkar varanleg áhrif á umhverfið. 4) Tæknilega skynsamlegt og hagkvæmtMiðlæg lausn minnkar þörf á flóknum plástrum milli ólíkra lausna milli kafla og dregur úr tæknilegri áhættu þar sem landhalli og þrengsli gera jaðarlægar útfærslur viðkvæmari. Með fyrirkomulaginu er hægðarauki að fjölga akreinum við gatnamót og tryggja viðunandi flæði allra ferðamáta. Fjöldi akreina eykur ekki sjálfkrafa afköst Þá er vert að hafa í huga að fjöldi akreina á milli gagnamóta þýðir ekki sjálfkrafa meiri afköst kerfisins. Gatnamót eru helsti flöskuhálsinn. Samgönguspá fyrir umbreytt kerfi á Suðurlandsbraut gerir ráð fyrir að akreinum sé skipt þannig að jafn margar verði fyrir bílaumferð og almenningssamgöngur. Áætlað er að bílaumferð um götuna dragist saman um 33%, á sama tíma og farþegafjöldi í almenningssamgöngum aukist þannig að fleira fólk muni fara um Suðurlandsbraut í framtíðinni en nú er. Bílastæði, verslun og þjónusta. Hver er raunveruleg breyting? Nú er Þjóðarhöll Íslendinga í undirbúningi. Gera má ráð fyrir að með breytingunni sparist mikið landrými sem annars færi undir enn fleiri bílastæði. En hver eru áhrif á lóðarhafa Suðurlandsbrautar 4-32? Í dag eru um 1600 bílastæði á og við umræddar lóðir - þar af eru um 180 á borgarlandi. Gangi deiliskipulagstillagan í gegn má áætla að um 166 stæði (um 10%) þurfi að víkja. Endanleg tala ræðst svo af útfærslu innan lóða. Margir lóðarhafar geta fjölgað stæðum innan sinna lóða með því að nýta heimildir í núverandi deiliskipulagi til bílastæðahúsa. Reynsla af sambærilegum endurhönnunum annars staðar bendir til að umbreyting göturýmis, líkt og gert er ráð fyrir á Suðurlandsbraut, hafi í för með sér jákvæð langtímaáhrif þegar umhverfi, tengingar og öryggi batnar. Umbreyting sem snýst um lífsgæði og framtíðargetu Umbreyting Suðurlandsbrautar er ekki bara verkefni Borgarlínu – hún er hluti af stærri borgarskipulags- og samgöngusýn þar sem markmiðið er að fleiri komist leiðar sinnar á öruggan, skilvirkan og sjálfbæran hátt, án þess að borgin verði háð götubreikkunum og flóknari gatnamótum. Miðjusett sérrými er valið vegna þess að það skilar auknu öryggi, skýrara kerfi, minna raski og meiri borgargæðum. Áhugasöm eru hvött til að kynna sér tillögu að deiliskipulagi Suðurlandsbrautar í skipulagsgáttinni þar sem öll gögn er að finna. Opið er fyrir ábendingar og athugasemdir til 12. mars næstkomandi. Höfundur er samgönguverkfræðingur og forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samgöngur Borgarlína Reykjavík Skipulag Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun