Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Eiður Þór Árnason skrifar 4. febrúar 2026 18:34 Leikskólinn er í Breiðholti í Reykjavík. Vísir/anton Brink Barn á yngri deild leikskólans Bakkaborgar í Breiðholti í Reykjavík var skilið eitt eftir síðdegis á mánudag þegar starfsfólk fór heim. Talið er að barnið hafi verið eitt úti í um fimm mínútur áður en faðir þess kom að sækja það.
Samskiptastjóri Reykjavíkurborgar segir málið litið alvarlegum augum og búið sé að breyta verklagi á leikskólanum til að reyna að koma í veg fyrir að slíkt komi fyrir aftur. Mistök hafi verið gerð við skráningu barnanna og þau óvart öll verið skráð út í lok dags. Hún hefur ekki upplýsingar um aldur barnsins en segir það á einni af yngri deildum leikskólans. Bakkaborg er með ungbarnadeild, tvær miðdeildir og tvær deildir fyrir elstu börnin. Mbl.is greindi fyrst frá. „Að sjálfsögðu tökum við þetta mjög alvarlega og okkur þykir þetta alveg ótrúlega leiðinlegt. Þetta er ekki eins og við viljum hafa það. Við munum fara yfir öll þessi mál til að passa að þetta gerist ekki aftur. Því miður geta svona mál komið upp en það er að sjálfsögðu aldrei ásættanlegt,“ segir Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, samskiptastjóri borgarinnar, í samtali við fréttastofu. Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, samskiptastjóri Reykjavíkurborgar.Reykjavíkurborg Eva segir gott veður hafa verið á mánudag og mikill fjöldi barna um tíma verið á leikvellinum við skólann ásamt foreldrum sínum. „Samkvæmt skráningu leit út fyrir að öll börn hafi verið sótt og starfsmaður lokar leikskólanum.“ Eftir því sem þau best viti hafi liðið um fimm mínútur þangað til faðir kom að barni sínu einu á leikvellinum. Eva tekur fram að hlið leikvallarins hafi verið lokað þegar faðirinn kom á staðinn. Sá hafi strax látið starfsfólk leikskólans vita. „Leikskólastjóri hefur strax samband við fagstjóra leikskóla í hverfinu sem hefur samband við skrifstofustjóra og það er haft samband við foreldrið.“ Málið hafi svo verið unnið áfram með foreldrinu. Foreldrar fái tilkynningu Eftir atvikið stendur til að halda betur utan um það hvenær börn koma á leikskólann og þau eru sótt. „Það var farið yfir alla ferla. Það er verið að skoða einhverjar leiðir til að foreldrar fái meldingu þegar börn eru skráð inn og út svo það fari ekki á milli mála,“ segir Eva. Þá verði passað upp á það að tveir starfsmenn muni fara yfir leiksvæðið við Bakkaborg í lok dags til að tryggja að öll börn séu farin heim. Stjórnendur Bakkaborgar hafa greint foreldrum frá atvikinu í tölvupósti og tilkynnt þeim um breytt verklag. Í póstinum eru foreldrar beðnir um að dvelja ekki lengur í garðinum en þörf er á eftir að barn er sótt, að því er fram kemur í frétt Mbl.is. Erfitt geti verið að átta sig á því hvort öll börn hafi verið sótt ef margir eru á lóðinni. „Sem betur fer varð enginn skaði en það verður farið yfir þetta nákvæmlega og farið yfir þetta með öðrum leikskólum líka til þess að koma í veg fyrir að svona lagað geti nokkurn tímann gerst aftur,“ segir Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, samskiptastjóri Reykjavíkurborgar.
Reykjavík Leikskólar Skóla- og menntamál Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira