Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig Ágúst Orri Arnarson skrifar 5. febrúar 2026 10:30 Stefán Ingi kvaddi Noreg sem þriðji markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar. Sandefjord Fotball Stefán Ingi Sigurðarson ætlar ekki að láta háan verðmiða trufla sig hjá nýju félagi í hollensku úrvalsdeildinni, sem þessi hávaxni framherji hefur lengi heillast af.
Stefán hefur slegið í gegn með Sandefjord síðustu tvö ár og endaði síðasta tímabil sem þriðji markahæsti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar. Nú hefur hann stigið skref fram á við og samið við Go Ahead Eagles í hollensku úrvalsdeildinni. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á hollensku deildinni og hollenska boltanum. Ég þekki aðeins til því ég bjó í Lúxemborg ungur og maður náði að fylgjast með fótboltanum þar í kring. Líka þegar ég var í Belgíu [á mála hjá Patro Eisden]. Holland hefur lengi verið staður sem mig langar að spila.“ Maður gefur sér það líka að hollenska deildin henti ágætlega fyrir hávaxinn framherja? „Það er akkúrat ástæðan fyrir því að mig langaði að spila í Hollandi. Ég hef horft á deildina og hugsað að þetta væri deild sem gæti hentað mér vel. Norska deildin hentaði mér líka mjög vel en hollenska deildin er talin sterkari og maður vill alltaf taka skref upp á við.“ Félagaskiptin gengu þó ekki fljótt fyrir sig enda um metverð að ræða. Stefán var keyptur á um þrjár milljónir evra, sem gerir hann bæði að dýrasta leikmanni sem Sandefjord hefur selt frá sér og þann dýrasta sem Go Ahead Eagles hefur fjárfest í. Stefán Ingi skrifaði undir samning til ársins 2030 hjá GA Eagles. GA Eagles „Það skiptir mig ekki máli þannig séð, hvað fer á milli klúbbana, bara að þetta hafi klárast. Starfið mitt er ennþá það sama, að hjálpa liðinu að vinna leiki með því að skora mörk og leggja upp. Sama hvað fór þar, það breytir engu. En auðvitað er gaman bæði lið hafi viljað hafa mann.“ Hjá Go Ahead Eagles mun Stefán hitta annan leikmann sem er alinn upp í herbúðum Breiðabliks í Kópavoginum. Alfons Sampsted skipti á dögunum til félagins frá Birmingham. „Við náðum aldrei að spila saman, þegar ég byrjaði í 2. flokki var hann kominn upp í meistaraflokk, en maður veit auðvitað alltaf hverjir aðrir leikmenn eru. Ég þekki hann ekki persónulega en býst við að kynnast honum betur á næstunni.“
Hollenski boltinn Norski boltinn Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira