Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Jakob Bjarnar skrifar 5. febrúar 2026 15:04 Nú gengur mikið á að tjaldabaki í Framsóknarflokknum. Þær Lilja D. Alfreðsdóttir og Ingibjörg Ísaksen takast á um formennskustólinn. vísir/Einar/Vilhelm Þegar hafa tvær konur lýst yfir áhuga á formennsku í Framsóknarflokknum. Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknar og fyrrverandi ráðherra, falast eftir formannsstólnum líkt og Ingibjörg Ísaksen, þingmaður flokksins. Samkvæmt heimildum Vísis gengur mikið á að tjaldabaki.
Vísir hefur rætt við flokksmenn sem vilja ekki koma fram undir nafni en fullyrt er að óheiðarleiki og ógnarstjórnartilburðir séu nú viðhafðir að tjaldabaki og þá af hálfu stuðningsmanna Lilju. Hún er sögð njóta stuðnings manna á borð við Þórólf Gíslason kaupfélagsstjóra Skagfirðinga og Davíðs Oddssonar ritstjóra Morgunblaðsins. Sagt er að stuðningsmennirnir hafi smalað í sæti í félaginu í Reykjavík sem verður til þess að félagsmenn, þeirra á meðal stjórnarfólk í Samtökum ungra Framsóknarmanna, komast ekki að til að kjósa. Að sögn heimildarmanns er unnið að því að fylla sæti á sama hátt í öðrum félögum Framsóknarflokksins. Það er ef til vill til marks um einskonar ógn að fólk sem Vísir hefur heyrt í vill alls ekki tjá sig undir nafni. Talið er að hreinsanir verði eftir formannskjörið. Flokksþingið, þar sem örlög Lilju og Ingibjargar ráðast, byrjar 14. febrúar en formannskosning er sunnudaginn 15. febrúar. Vakin er athygli blaðamanns á því að önnur dagsetning sé öllu mikilvægari, sem er 7. febrúar en þá er síðasti séns að skila inn kjörbréfum. Það eru þau gögn sem félögin skila inn til skrifstofunnar. Fullyrt er í eyru blaðamanns að hringt sé í formenn aðildarfélaga, sem útnefna kjörmenn, að þeir skuli ekki hafa áhyggjur af því hvernig fólk komi í félagið, þeir þurfi bara að hafa áhyggjur af því að koma þeim á kjörstað. Afar flóknar reglur eru til grundvallar því hverjir fá kjörbréf, sveitarstjórnarmenn og þingmenn eru til að mynda sjálfkjörnir en talið er að um þúsund manns muni eiga sæti á flokksþinginu. Hvorki náðist í Lilju né Ingibjörgu við vinnslu fréttarinnar.
Framsóknarflokkurinn Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Sjá meira