Handbolti

Framkonur flugu upp í þriðja sæti

Sindri Sverrisson skrifar
Framkonur slógu á létta strengi á dögunum, þegar þær minntu á bikarleik sinn við ÍR. Þær unnu þann leik og einnig stórsigur gegn Selfossi í kvöld.
Framkonur slógu á létta strengi á dögunum, þegar þær minntu á bikarleik sinn við ÍR. Þær unnu þann leik og einnig stórsigur gegn Selfossi í kvöld. Instagram/@framkisur

Fram komst, að minnsta kosti tímabundið, upp í 3. sæti Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld með stórsigri á botnliði Selfoss, 34-19, í Úlfarsárdal.

Vikan hefur því verið frábær hjá Framkonum sem tryggðu sig inn í undanúrslit Powerade-bikarsins á mánudaginn. Dregið verður í undanúrslitin á morgun.

Með sigrinum í kvöld er Fram nú með 17 stig eftir 16 leiki, jafnmörg og Haukar og stigi meira en ÍR sem bæði eiga leik til góða. Haukar sækja topplið Vals heim á laugardaginn en ÍR sækir Stjörnuna heim.

Samkvæmt tölfræði HB Statz voru ellefu leikmenn Fram á meðal markaskorara í kvöld. Hulda Dagsdóttir var markahæst með sjö mörk, Harpa María Friðgeirsdóttir skoraði sex og Dagmar Guðrún Pálsdóttir fimm. Þá vörðu þær Ethel Gyða Bjarnasen og Arna Sif Jónsdóttir vel eða sex skot hvor, eða um 40% skota á markið.

Hjá Selfossi var Marte Syverud markahæst með fjögur mörk úr tíu skotum. Adela Eyrún Jóhannsdóttir og Hulda Hrönn Bragadóttir komu næstar með fjögur mörk hvor.

Selfoss er áfram á botni Olís-deildarinnar með fjögur stig, stigi á eftir Stjörnunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×