Erlent

Banda­ríkja­menn og Rússar taka upp form­leg sam­skipti á ný

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Herforinginn Alexus Gregory Grynkewich fer fyrir herafla Bandaríkjanna í Evrópu.
Herforinginn Alexus Gregory Grynkewich fer fyrir herafla Bandaríkjanna í Evrópu. Getty/Omar Havana

Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Rússlandi hafa komist að samkomulagi um að koma aftur á formlegum og stöðugum samskiptum milli hernaðaryfirvalda ríkjanna. Tilkynnt var um þetta í kjölfar funda fulltrúa Bandaríkjanna og Rússlands á hliðarlínum viðræðna um Úkraínu í Abu Dhabi.

Samkvæmt yfirlýsingu frá herstjórn Bandaríkjanna í Evrópu standa vonir til þess að samstarfið muni á endanum leiða til varanlegs friðar. 

Boðleiðum milli ríkjanna hefur jafnan verið haldið opið þrátt fyrir að blásið hafi köldu þeirra á milli, meðal annars til að koma í veg fyrir misskilning og stigmögnun. Hins vegar var slitið á þær árið 2021, skömmu áður en Rússar réðust inn í Úkraínu. Síðan hafa herforingjar Bandaríkjanna, Rússlands og Atlantshafsbandalagsins átt í einhverjum samskiptum en ekki með reglubundnum hætti.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað lýst áhuga sínum á að bæta samskipti og samband Bandaríkjanna og Rússlands, á sama tíma og hann hefur notað Rússa sem „vonda kallinn“ til að þrýsta á Evrópuleiðtoga og freista þess að ná yfirráðum yfir Grænlandi.

Forsetinn sagði í gær að í stað þess að endurnýja START samkomulagið um fækkun kjarnavopna, sem rann út í vikunni, vildi hann komast að „nýju og betra“ samkomulagi. Viðræður um það hafa einnig staðið yfir í Abu Dhabi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×