Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 6. febrúar 2026 10:40 Þessi strætó rann útaf veginum og lenti svo gott sem inni í runna í Sigerslev á Suður-Sjálandi í gær. EPA/Mads Claus Rasmussen Óvenjumikill snjór, á danskan mælikvarða, hefur fallið síðasta sólarhringinn í Danmörku og hefur ríkislögreglustjóri varað íbúa í nokkrum lögregluumdæmum landsins við því að fara út í umferðina nema nauðsyn krefji. Samgöngur hafa verið í uppnámi og nokkuð mikið um umferðaróhöpp vegna snjókomunnar, sem er sú mesta í Kaupmannahöfn í fimmtán ár.
Danskir fréttamiðlar loga með gulum og rauðum borðum vegna snjókomunnar sem gert er ráð fyrir að haldi áfram í dag og í kvöld. Allnokkur snjór féll í gær og í nótt og danska veðurstofan varar við snjóstormi í stórum hluta landsins fram eftir degi í dag, einkum á Norður-Jótlandi. Samkvæmt upplýsingum sem DR hefur eftir Veðurstofu Danmerkur er nú um 17 sentímetra djúpur snjór í höfuðborginni Kaupmannahöfn, sem er það mesta sem mælst hefur síðan 2011. Hins vegar sýni gögn veðurstofunnar að ekki hafi sést eins umfangsmikil snjókoma í borginni í fimmtán ár, þegar litið er til þess hve mikið snjómagn hefur aukist milli daga. Í gær mældist snjórinn 2,5 sentímetra djúpur en í dag 17,1 sentímetrar, sem gerir aukningu upp á 14,6 sentímetra. Snjómokstur í fullum gangi við Baarse.EPA/Mads Claus Rasmussen Víða sitja bílar fastir, strætisvagnar hafa hafnað utanvegar og nokkuð um aflýstar ferðir eða önnur áhrif á almenningssamgöngur, meðal annars á innanlandsflug. Þá hefur verið varað við því að veðrið gæti haft áhrif á millilandaflug frá Kaupmannahöfn, einkum í kvöld og í nótt. Skólastarf hefur verið fellt niður á einhverjum stöðum um landið, og þeir sem geta hafa verið hvattir til að vinna heima í dag. Lögreglan hefur ráðið fólki frá því að halda af stað út í umferðina að nauðsynjalausu í umdæmum lögreglunnar á Norður- og Suður-Sjálandi, Austur-Jótlandi og í norðurhluta Suðaustur-Jótlands. Hins vegar nær vetrarveðrið að einhverju marki til allra landshluta og ráðleggur embætti ríkislögreglustjóra öllum að fylgjast vel með færð og veðri áður en lagt er af stað, sama hvar það er á landinu. Þessi strætó hafnaði á vegriði og lenti útaf veginum. EPA/Mads Claus Rasmussen
Danmörk Veður Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Sjá meira