Handbolti

Toppliðið lagði Hauka örugg­lega að velli

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Lovísa Thompson var markahæst hjá Valskonum með 9 mörk. 
Lovísa Thompson var markahæst hjá Valskonum með 9 mörk.  Vísir/Anton Brink

Topplið Vals vann öruggan 29-23 sigur gegn Haukum í 16. umferð Olís deildar kvenna.

Valskonur voru ekki lengi að slíta sig frá Haukum og voru komnar með örugga forystu um miðjan fyrri hálfleik. Þær sigldu síðan fram úr í þeim seinni og unnu að endingu mjög öruggan sex marka sigur. 

Lovísa Thompson var markahæst hjá Val með 9 mörk og Þórey Anna Ásgeirsdóttir var næst á eftir henni með 8 mörk. Hafdís Renötudóttir var í góðu stuði í markinu og varði 17 af 39 skotum, eða 43.6 prósent allra skota.

Valur tók þar með tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar en ÍBV fylgir þeim fast eftir og á leik til góða gegn KA/Þór á morgun. Haukakonur sitja hins vegar í 5. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×