Fótbolti

Guardiola sá versta hálf­leik City á heima­velli í fjór­tán ár

Sindri Sverrisson skrifar
Pep Guardiola var í stúkunni í kvöld á leik Manchester City og PSG.
Pep Guardiola var í stúkunni í kvöld á leik Manchester City og PSG. Getty/Martin Rickett

Manchester City átti afar erfitt uppdráttar gegn Evrópumeisturum PSG í fyrri hálfleik í kvöld, í Meistaradeild Evrópu í fótbolta.

Pep Guardiola, sem hætti sem stjóri City í sumar eftir að hafa stýrt liðinu frá árinu 2016, sá gestina frá París skora þrjú mörk og vera 3-0 yfir að loknum fyrri hálfleik. Leiknum var ekki lokið þegar þetta var skrifað.

Þetta er í fyrsta sinn frá því í janúar 2012 sem að City er þremur mörkum undir í hálfleik á heimavelli. Það gerðist síðast í leik gegn Manchester United fyrir 14 árum og 10 mánuðum.

Désire Doué, Ousmane Dembélé og Vitinha skoruðu mörk PSG sem raunar hefði getað skorað fleiri mörk í fyrri hálfleiknum.

Beina textalýsingu frá leiknum má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×