Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Lovísa Arnardóttir skrifar 8. febrúar 2026 21:26 Prinsinn fyrrverandi og Epstein. Vísír/EPA og AP Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins og yngri bróðir Karls Bretakonungs, virðist hafa vísvitandi deilt trúnaðarupplýsingum með Jeffrey Epstein úr opinberu starfi sínu sem viðskiptasendiherra árin 2010 og 2011. Það kemur fram í nýjustu Epstein-skjölunum. Fjallað er um málið á vef BBC.
Þar kemur fram að tölvupóstar úr Epstein-skjölunum sem voru birt nýlega sýni að prinsinn fyrrverandi deildi skýrslum með Epstein um heimsóknir sínar sem viðskiptasendiherra til Singapúr, Hong Kong og Víetnam auk þess sem hann deildi með honum trúnaðarupplýsingum um fjárfestingartækifæri. Í frétt BBC segir að viðskiptasendiherrum beri að gæta trúnaðar um viðkvæmar upplýsingar sem geti varðað viðskipti eða stjórnmál sem snerti opinberar heimsóknir þeirra. Samkvæmt BBC höfðu þau samband við Andrew, eða Andrés eins og hann hefur verið kallaður á Íslandi, en hann hefur ekki svarað fyrirspurnum fjölmiðilsins. Andrés hefur statt og stöðugt þvertekið fyrir að hafa gert nokkuð rangt af sér og vísað til þess að það eitt og sér að vera nefndur í skjölunum þýði ekki að hann hafi gert nokkuð rangt af sér. Í frétt BBC segir að í tölvupóstum sem Andrés hafi sent Eptein 7. Október árið 2010 hafi hann fjallað um væntanlegar opinberar ferðir sínar sem viðskiptasendiherra til Singapúr, Víetnam, Shenzhen í Kína og Hong Kong, þar sem viðskiptafélagar Epsteins voru í fylgd með honum. Eftir ferðina, þann 30. nóvember, virðist hann svo hafa áframsent opinberar skýrslur um þessar heimsóknir, sem þáverandi sérstakur aðstoðarmaður hans, Amit Patel, sendi honum, til Epsteins, fimm mínútum eftir að hafa fengið þær. Sagðist síðast hafa hitt hann í desember 2010 Í viðtali við BBC Newsnight árið 2019 sagði Andrés að hann hefði síðast hitt Epstein í desember árið 2010 til að binda enda á vináttu þeirra. Í skjölunum megi sjá að á aðfangadag það sama ár hafi hann sent Epstein tölvupóst með trúnaðarupplýsingum um fjárfestingartækifæri í Afganistan, sem breski herinn hafði umsjón með á þeim tíma. Á þessum tíma var Epstein þegar dæmdur kynferðisbrotamaður. Í frétt BBC er haft eftir Sir Vince Cable, sem þá var viðskiptaráðherra, að hann hafi ekki heyrt af þessu áður eða vitað að Andrés hefði deilt upplýsingunum með Epstein. Í frétt BBC segir að Andrés hafi svo í öðrum tölvupósti, dagsettum 9. febrúar 2011, stungið upp á því að Epstein gæti fjárfest í einkafjárfestingarfyrirtæki sem hann heimsótti viku áður. Andrés hefur verið undir smásjá í mörg ár vegna fyrri vináttu sinnar við Epstein. Hann var sviptur konunglegum titlum sínum í október á síðasta ári í kjölfar ásakana um kynferðisofbeldi og vegna tengsla hans við Epstein. Eitt fórnarlamba Epstein Virginia Guiffre hefur sakað prinsinn um að hafa brotið á sér þegar hún var á táningsaldri. Hann hefur ávallt neitað sök. Fyrr í febrúar flutti hann frá heimili sínu í Windsor til Sandringham-setursins í Norfolk. Í breskum götublöðum var svo fullyrt í dag að Andrési hafi verið hent út af heimili sínu á miðnætti í vikunni og gert að flytja í annað húsnæði á vegum konungshallarinnar. Þetta fullyrða bresk götublöð en flutningarnir eru sagðir hafa átt sér stað aðfaranótt mánudagsins.
Bretland Mál Jeffrey Epstein Mál Andrésar prins Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Morgan McSweeney hefur sagt af sér sem starfsmannastjóri Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands. Hann kveðst hafa spilað stórt hlutverk í aðdraganda skipan Peter Mandelson sem sendiherra Breta í Bandaríkjunum. 8. febrúar 2026 16:00 Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum „Við skiljum þau sterku viðbrögð sem fólk hefur sýnt vegna þess sem fram hefur komið síðustu daga.“ Svona hefst ný yfirlýsing frá norsku konungsfjölskyldunni en styr hefur staðið um krónprinsessuna Mette-Marit eftir að skjöl vörpuðu ljósi á samskipti hennar við Jeffrey Epstein eftir að hann varð dæmdur fyrir kynferðisafbrot. 6. febrúar 2026 21:32 Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, er til rannsóknar hjá norsku efnahagslögreglunni vegna gruns um spillingu þar sem Epstein-skjölin hafa varpað nýju ljósi á samband hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. 5. febrúar 2026 22:43 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Sjá meira
Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Morgan McSweeney hefur sagt af sér sem starfsmannastjóri Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands. Hann kveðst hafa spilað stórt hlutverk í aðdraganda skipan Peter Mandelson sem sendiherra Breta í Bandaríkjunum. 8. febrúar 2026 16:00
Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum „Við skiljum þau sterku viðbrögð sem fólk hefur sýnt vegna þess sem fram hefur komið síðustu daga.“ Svona hefst ný yfirlýsing frá norsku konungsfjölskyldunni en styr hefur staðið um krónprinsessuna Mette-Marit eftir að skjöl vörpuðu ljósi á samskipti hennar við Jeffrey Epstein eftir að hann varð dæmdur fyrir kynferðisafbrot. 6. febrúar 2026 21:32
Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, er til rannsóknar hjá norsku efnahagslögreglunni vegna gruns um spillingu þar sem Epstein-skjölin hafa varpað nýju ljósi á samband hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. 5. febrúar 2026 22:43