Læknar sögðu að hann þyrfti að hætta og pabbi mætti loksins á leik Sindri Sverrisson skrifar 9. febrúar 2026 14:48 Kenneth Walker III með Vince Lombardi verðlaunagripinn. Getty/Kevin C. Cox Pabbi Kenneth Walker hafði aldrei mætt á NFL-leik hjá honum þar til í nótt, þegar hann fékk að sjá soninn hljóta MVP-verðlaunin í Super Bowl. Feðgarnir börðust saman í gegnum erfið veikindi sonarins sem læknar sögðu að yrði að hætta að spila amerískan fótbolta.
Kenneth Walker III varð í nótt fyrsti hlauparinn sem útnefndur er verðmætasti leikmaður Super Bowl á þessari öld, og aðeins sá áttundi í sögunni. Hann hljóp 135 jarda fyrir Seattle Seahawks sem unnu afar öruggan 29-13 sigur gegn New England Patriots. Kvöldið varð þannig að algjöru draumakvöldi fyrir Walker, sem og nafna hans og pabba. Saman hafa þeir upplifað ýmislegt því þegar Walker yngri var í menntaskóla fékk hann blóðtappa í lungun og þegar pabbinn sat við sjúkrabeðinn, hlustandi á lækna segja að fótboltaferillinn yrði ekki lengri, var eflaust erfitt að ímynda sér MVP-verðlaun og sigur í Super Bowl. „Pabbi er alltaf að koma til Seattle og hann horfir á leikina en hann mætir aldrei á leiki því hann kann ekki við mannmergðina,“ sagði Walker yngri við CNN eftir sigurinn í nótt. „Þetta er því fyrsti NFL-leikurinn hans og við unnum Super Bowl svo það hefur mikla þýðingu fyrir mig og ég veit að hann er stoltur af mér,“ bætti hann við. Eins og fyrr segir var ekkert útlit fyrir það að Walker næði svona langt, þegar hann var í menntaskóla: „Þegar læknarnir sögðu mér að ég gæti ekki spilað meira þá hélt ég bara að ferlinum væri lokið. Þetta var það sem ég hafði gert alla daga og þetta var algjört áfall en pabbi var með mér á spítalanum og studdi mig í gegnum allt ferlið, sem og mamma mín. Að hafa komist í gegnum veikindin gerði mig þakklátan fyrir hvern dag og fyrir að geta reimað á mig skóna og spilað þennan leik, fullur af lífi,“ sagði Walker.
NFL Ofurskálin Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Þykja Alpine liðið vera of dýrt Formúla 1 Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Lætur hnefana tala HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar Þykja Alpine liðið vera of dýrt Dagskráin í dag: Landa Arsenal þeim stóra? Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Sjá meira