Lagareldi til framtíðar – ábyrgur rammi fyrir atvinnulíf, umhverfi og samfélög Gerđur B. Sveinsdóttir, Sigríđur Júlía Brynleifsdóttir, Bragi Þór Thorodssen, Þorgeir Pálsson, Jóna Árný Þórđardóttir, Dagmar Ýr Stefánsdóttir og Jón Páll Hreinsson skrifa 9. febrúar 2026 17:01 Lagafrumvarp um lagareldi, sem nú er til umfjöllunar, markar tímamót. Þar er í fyrsta sinn lögð fram heildstæð löggjöf um eina af mikilvægustu atvinnugreinum landsins, með skýrari ramma, auknum fyrirsjáanleika og skýrum kröfum um umhverfisvernd, vöktun og ábyrgð. Að baki frumvarpinu liggur áralangur undirbúningur innlendra og erlendra sérfræðinga. Það felur í sér verulegar umbætur á núverandi regluverki og er nauðsynlegt skref til að þau samfélög sem treysta á lagareldi geti horft til framtíðar. Mikilvægt framfaraskref frá núverandi regluverki Í umsögnum fiskeldissveitarfélaga koma fram ýmsar athugasemdir og ábendingar um hvernig megi bæta frumvarpið enn frekar með hagsmuni sveitarfélaga að leiðarljósi. Þrátt fyrir það er ljóst að margt í frumvarpinu er til mikilla bóta miðað við gildandi löggjöf. Drögin bera skýr merki um vandaða og yfirvegaða vinnu af hálfu atvinnuvegaráðuneytisins og mikilvægt er að sú staðreynd fái sanngjarna umfjöllun í opinberri umræðu. Sveitarfélögin á Vestfjörðum og Austfjörðum hafa lýst yfir stuðningi við frumvarpið og telja það mikilvægt skref í áframhaldandi þróun fiskeldis til hagsbóta fyrir samfélögin. Þeirri sýn erum við sammála. Fiskeldi er nú þegar ein af burðarstoðum samfélagsins á Vestfjörðum og Austurlandi og hefur haft afgerandi jákvæð áhrif á byggðaþróun og verðmætasköpun. Greinin skiptir ekki aðeins máli fyrir fyrirtækin sjálf heldur einnig fyrir sveitarfélögin sem hýsa starfsemina, þjónustuaðila og samfélög í heild. Af þeirri ástæðu er lykilatriði að lagaramminn sé skýr, stöðugur og til þess fallinn að styðja við sjálfbæra og skynsamlega uppbyggingu. Frumvarpsdrögin endurspegla skýran vilja stjórnvalda til að ná þessum markmiðum. Þar er meðal annars lögð áhersla á einfaldara og samræmdara regluverk, aukna og kerfisbundna vöktun umhverfisáhrifa, skýrari heimildir stjórnvalda til íhlutunar þegar ástæða er til, auk hvata til tæknilausna sem draga úr áhættu, svo sem lokaðs búnaðar og notkunar ófrjórra fiska. Slík nálgun er forsenda varanlegrar sáttar um greinina. Rödd sveitarfélaga skiptir máli Á sama tíma er eðlilegt og nauðsynlegt að hlustað sé eftir sjónarmiðum sveitarfélaga. Þau bera ábyrgð á skipulagi, innviðum og samfélagslegum áhrifum starfseminnar og standa næst þeim raunveruleika sem lagasetningin á að ná til. Umsagnir sveitarfélaganna endurspegla þessa stöðu vel: vilja til að styðja við greinina, samhliða skýrri kröfu um að tekið sé tillit til staðbundinna aðstæðna, álags á innviði og þess kostnaðar sem fellur á sveitarfélögin. Við teljum því mikilvægt að áfram verði unnið að frumvarpinu með þessi sjónarmið að leiðarljósi. Við hvetjum atvinnuvegaráðherra og starfsfólk ráðuneytisins til að halda áfram á þeirri braut sem hér hefur verið mörkuð, en jafnframt að hlusta sérstaklega eftir röddum þeirra sem lifa og starfa í næsta nágrenni við fiskeldi. Slík samtöl eru forsenda trausts og samfélagslegrar sáttar. Ábyrg forysta tryggir aukna verðmætasköpun Það hefur ekki farið fram hjá neinum sem hafa hagsmuni af lagareldi að mikil og kröftug umræða er um greinina og frumvarpið. Það ber vott um pólitískan kjark og ábyrgð atvinnuvegaráðherra, Hönnu Katrínar Friðriksson, að leggja áherslu á þetta frumvarp og þær breytingar sem í því felast. Við viljum því hvetja ráðherrann áfram og skora á þingmenn þjóðarinnar að styðja frumvarp um lagareldi. Samfélögin á Vestfjörðum og Austurlandi horfa til framtíðar með aukinni verðmætasköpun lagareldis í fjórðungunum, með áherslu á sjálfbæra nýtingu – líkt og við höfum gert í öðrum atvinnugreinum. Hér eru ekki einungis hagsmunir okkar í húfi, heldur hagsmunir Íslands alls. Jón Páll Hreinsson bæjarstjóri í Bolungarvík Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþingi Jóna Árný Þórđardóttir bæjarstjóri Fjarđarbyggđ Þorgeir Pálsson sveitarstjóri Strandabyggđ Bragi Þór Thorodssen sveitarstjóri Súđavíkurhrepp Sigríđur Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri Ísafjarðarbær Gerđur B. Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggð Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fiskeldi Bragi Þór Thoroddsen Bolungarvík Ísafjarðarbær Vesturbyggð Súðavíkurhreppur Strandabyggð Fjarðabyggð Múlaþing Mest lesið Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Skoðun Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Sjá meira