Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Eiður Þór Árnason og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa 9. febrúar 2026 19:45 Höskuldur Tryggvason, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni. Sýn Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú eru í fullum gangi og hún farin að taka á sig mynd. Nýja brúin liggur austar en sú gamla sem liggur inn á Selfoss og er ætlunin að færa umferðina fjær þéttbýlinu. Gert er ráð fyrir að brúin verði til haustið 2028.
Verkefnið gengur vel að sögn Höskuldar Tryggvasonar, verkefnastjóra hjá Vegagerðinni, og ekkert óvænt komið upp á fram að þessu. Verktakinn ÞG Verk vinni nú að uppsteypu á undirstöðum fyrir stöpla nýju brúarinnar, bæði á árbökkunum og út í eynni sem liggur í miðri Ölfusá. Nýja brúin liggur mun austar.Sýn Höskuldur segir um að ræða mjög umfangsmikla framkvæmd og með stærri verkefnum í vegagerð sem ráðist hefur verið í hér á landi. Brúin verði 330 metra löng og um fjörutíu starfsmenn vinni nú jafnan á svæðinu. „En þeim fer fjölgandi eftir því sem líður meira fram á vorið,“ sagði Höskuldur í kvöldfréttum Sýnar en hann var þá staddur á nýrri bráðabirgðabrú sem búið er að reisa út í eyjuna. Verður hún notuð meðan á framkvæmdum stendur. Nýja brúin komi til með að breyta miklu fyrir íbúa Íbúar á Selfossi hafa lengi kvartað undan umferðaröngþveiti á gömlu Ölfusárbrúnni á álagstímum. Höskuldur segir nýju brúnna koma til með að breyta mjög miklu enda muni hún leiða umferðina annað. Framkvæmdir eru í fullum gangi.sýn „Öll þungaumferð mun færast upp á nýju brúnna og svo líka mikið af annarri umferð líka, sérstaklega þeir sem fara hér beint í gegn.“ Hluti af framkvæmdunum sé að gera vegbrú í nýjum mislægum vegamótum austan við Selfoss. Eru þær framkvæmdir í fullum gangi sem og vegagerð sitt hvorum megin við brúnna. Því sé ljóst að mikið verði um að vera á svæðinu næstu misseri og ár.
Ölfus Vegagerð Samgöngur Ný Ölfusárbrú Flóahreppur Árborg Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira