Sérhæfð móttaka Landspítala fær nafn Bryndísar Klöru Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 10. febrúar 2026 13:35 Heilbrigðisráðherra kynnti stofnun Bryndísarhliðar í dag. Vísri/Lýður Valberg Heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um opnun sérhæfðrar ofbeldismóttöku innan Landspítala sem mun bera heitið Bryndísarhlíð en minningarsjóður Bryndísar Klöru er fjárhagslegur bakhjarl verkefnisins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Þar segir að fjárframlag sjóðsins fari í uppbyggingu á húsnæði mótttökunnar. Sjóðurinn hafi þegar safnað 120 milljónum til verkefnisins en stefni á að leggja alls til 200 milljónir króna auk vinnuframlags og innanstokksmuna sem sjóðurinn hyggst færa húsinu að gjöf. Með styrk frá minningarsjóði Bryndísar Klöru sé tryggt að uppbyggingu Bryndísarhlíðar megi ljúka á einu ári og eru framkvæmdir þegar hafnar. Segir ennfremur í tilkynningu að Landspítali veiti fjölþætta þjónustu til einstaklinga sem orðið hafa fyrir ofbeldi og áföllum en engin sérstök ofbeldismóttaka er fyrir börn. Vegna samlegðaráhrifa verða þau úrræði sem Landspítali býður þolendum ofbeldis, óháð tegund eða birtingarmynd þess, sameinuð í eina áfalla- og ofbeldismóttöku þar sem öll lykilþjónusta verður veitt undir sama þaki. Þar verður ofbeldismóttaka barna, heimilisofbeldisteymi Landspítala, áfallateymi fullorðinna og nýtt áfallateymi barna sem ekki er til í dag. Markmiðið sé að tryggja skjóta, samræmda og faglega heilbrigðisþjónustu án þess að börn og aðrir þolendur ofbeldis þurfi að fara á milli ólíkra staða eða kerfa. Bryndísarhlíð verður því þekkingar- og þjónustusetur (e. center of excellence). Samhliða þessu sé unnið að verkefni sem snúi að skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum landsins. Það verkefni er komið vel af stað og mun forprófun skimunarinnar fara fram nú í mars. Markmiðið er að skimað verði með markvissum og reglubundnum hætti fyrir ofbeldi meðal barna í grunnskólum og að tryggt verði að börnum sem orðið hafa fyrir ofbeldi standi til boða viðeigandi þjónusta. Upplýsingar um aðgengi að Bryndísarhlíð, tilvísanir og verklag, verði kynnt nánar í aðdraganda opnunar.
Heilbrigðismál Börn og uppeldi Landspítalinn Stunguárás við Skúlagötu Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira