Mikið högg fyrir Grindvíkinga Sindri Sverrisson skrifar 11. febrúar 2026 14:32 Arnór Tristan Helgason þarf að taka því rólega á næstunni en vonast til að spila með Grindavík í úrslitakeppninni í vor. vísir/Anton Arnór Tristan Helgason, troðslumeistarinn ungi í liði Grindavíkur, meiddist í hné í leik gegn Val á dögunum. Óttast var að tímabilinu gæti verið lokið hjá þessum öfluga körfuboltamanni en hann vonast til þess að geta mætt af krafti í úrslitakeppnina í vor.
Greint var frá meiðslum Arnórs Tristans í hlaðvarpsþættinum Boltinn lýgur ekki og sagt að hann yrði frá keppni í 3-6 mánuði. Útlitið er þó ekki alveg svo slæmt, segir Arnór, en eftir nánari skoðun hjá lækni er talið að hann gæti mögulega snúið aftur eftir 6-8 vikur, og þá látið til sín taka í úrslitakeppninni. „Það var talið að MCL liðbandið í hnénu væri slitið. Svo fékk ég nánari upplýsingar hjá lækni í Orkuhúsinu og var sagt að það liti bara út fyrir að vera illa tognað en ekki slitið. Svo er einhver áverki á krossbandinu. Maður er að horfa á 6-8 vikur en þetta gæti orðið lengra,“ segir Arnór og bendir á að ekki sé hægt að taka neina áhættu með krossbandið. Fréttirnar séu þó betri en hann óttaðist. „Þetta eru mjög góðar fréttir. Maður hefði getað þurft að fara í aðgerð og verið frá keppni í 5-6 mánuði. Þetta verða í mesta lagi 2-3 mánuðir, þannig að ég er bara mjög sáttur. Þá fer ég alla vega heill inn í sumarið,“ segir Arnór en bætir við að hann telji mjög líklegt að hann verði með í úrslitakeppninni. Þar ætla Grindvíkingar, sem eiga deildarmeistaratitilinn vísan, sér stóra hluti og Arnór er bjartsýnn: „Ef við verðum allir heilir fyrir úrslitakeppnina, Óli og Kane eru búnir að vera tæpir, þá erum við með drullutraust lið. Sérstaklega með því að fá Pargo inn sem alvöru leikstjórnanda. Maður sér það bara á æfingum hvað það er meiri stjórn á öllu. Við erum mjög sterkir kandídatar.“
Bónus-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira