Dr. Gunni flytur í Fljótshlíðina í faðm Helenu Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. febrúar 2026 09:51 Dr. Gunni er að flytja til Helenu í Fljótshlíðina og hefur svo störf í Grunnskólanum á Hellu. Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, hefur sett íbúð sína að Laugavegi 5 á leigu og er að flytja í Fljótshlíðina til kærustu sinnar, Helenu Hansdóttur Aspelund. Eftir átta ár hjá Þjóðskrá er hann hættur þar og hefur brátt störf í Grunnskólanum á Hellu sem leiðbeinandi og ritari.
Dr. Gunni greinir frá þessum tímamótum á Facebook-síðu sinni í morgunsárið. „Nú stendur aldeilis mikið til í lífinu. Eftir þrjú ár sem fráskilinn karl á Laugavegi og átta ár sem fulltrúi í afgreiðslunni í Þjóðskrá er ég nú að mölbrjóta þægindarammann og hoppa út í djúpu laugina,“ skrifar hann í færslunni „Ég flyt til Helenu minnar í Fljótshlíð og verð leiðbeinandi og ritari í Grunnskólanum á Hellu! Nýtt líf! Nýjar áskoranir! Fyrsti vinnudagur á Hellu verður 23. febrúar svo þetta ber brátt að,“ skrifar hann jafnframt. Gunnar og Helena hafa verið saman í þrjú ár og eru greinilega tilbúin að taka stóra skrefið. Helena er myndlistarkona, rak áður Týsgallerí og hefur starfað í ferðaþjónustu með eigin rekstur. „Hef allt mitt líf búið á mölinni svo þetta verða eflaust viðbrigði, en það er svo sem ekki eins og ég verði algjörlega útí rassgati, ekki nema svona 90 mín að keyra í bæinn. Æðislega íbúðin mín á Laugarvegi leitar að góðum leigjendum,“ skrifar Dr. Gunni í lok færslunnar. Íbúð í hjarta borgarinnar Gunni hefur sett íbúðina á leigu á síðunni Myigloo en hún er tveggja herbergja og 68,5 fermetrar að stærð með sérbílastæði. Leiguverðið sem hann biður um er 340 þúsund krónur. Sjá einnig: Dr. Gunni líkir fasteignakaupum við mafíuviðskipti Í lýsingunni kemur fram að stofan og eldhúsið séu samliggjandi með stórum gluggum sem gefi birtu og útsýni yfir mannlífið á Laugavegi. Eldhúsið sé innbyggt með innréttingu frá Alno, uppþvottavél og ísskáp. Svefnherbergin tvö séu rúmgóð með „flennistórum fataskáp og öðrum minni“ og innbú geti fylgt að hluta, þar á meðal hjónarúm, eldhúsáhöld og húsgögn. Færslu Dr. Gunna má lesa í heild sinni hér að neðan:
Leigumarkaður Reykjavík Rangárþing eystra Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Costanza á klakanum Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira