Upp­gjörið: Valur - ÍA 102-85 | Vals­menn aftur á sigurbraut

Andri Már Eggertsson skrifar
ÍR - Valur  Bónus deild karla 2025 - 2026 körfubolti
ÍR - Valur Bónus deild karla 2025 - 2026 körfubolti VÍSIR/VILHELM

Valur vann sautján stiga sigur á ÍA 102-85. Staðan var jöfn í hálfleik en um miðjan þriðja leikhluta fundu heimamenn annan gír og litu aldrei um öxl. Þetta var níunda tapa Skagamanna í röð sem eru á botni deildarinnar. 

Gojko Zudzum var mættur aftur í leikmannahóp ÍA eftir að hafa verið fjarverandi vegna meiðsla síðan í byrjun desember á síðasta ári. Jafnræði var með liðunum til að byrja með en þegar líða tók á fyrsta leikhluta gerðu heimamenn sjö stig í röð og komust í bílstjórasætið. Valsmenn voru fjórum stigum yfir eftir fyrsta leikhluta 21-17.

Annar leikhluti fór rólega af stað. Bæði lið voru í vandræðum með að skora og hvorugu liðinu tókst að grípa augnablikið. Óskar Þór Þorsteinsson, þjálfari ÍA, tók leikhlé í stöðunni 27-25. Valsmenn þurftu einnig á þessu leikhléi að halda og nýttu tímann betur. Heimamenn gripu augnablikið og svöruðu með 15-4 kafla.

Skagamenn bitu frá sér undir lok fyrri hálfleiks og gerðu síðustu tíu stigin. Staðan var jöfn í hálfleik 45-45.

Gestirnir frá Akranesi hömruðu járnið á meðan það var heitt og gerðu fyrstu sjö stigin í seinni hálfleik. Lazar Nikolic endaði síðan 17-0 áhlaup ÍA með körfu og við það vöknuðu Valsarar sem voru níu stigum yfir þegar haldið var í síðustu lotu.

Skagamenn ógnuðu aldrei forskoti Vals að neinu viti og heimamenn unnu að lokum.

Atvik leiksins

Frank Booker klikkaði á þriggja stiga skoti en hljóp strax á eftir boltanum og náði honum í loftinu og kastaði honum í Skagamann og sótti innkast. Á þessum tíma í fjórða leikhluta var allt með Valsmönnum.

Stjörnur og skúrkar

Kristófer Acox, leikmaður Vals, sneri aftur eftir meiðsli og var með tvöfalda tvennu. Kristófer gerði 14 stig og tók 13 fráköst.

Igor Maric, leikmaður Vals, spilaði sinn annan leik fyrir félagið í kvöld og gerði 14 stig á fimmtán mínútum.

Skagamenn fengu lítið sem ekkert framlag af bekknum. Varamenn ÍA gerðu samtals fimm stig á meðan varamenn Vals gerðu tuttugu og sjö stig.

Dómararnir

Dómarar kvöldsins voru Bjarki Þór Davíðsson, Jakob Árni Ísleifsson og Einar Valur Gunnarsson.

Tríóið var með allt upp á tíu í kvöld og það var ekki við neinu að kvarta og þeir geta verið sáttir með sína frammistöðu.

Stemning og umgjörð

Stemningin var fín í N1-höllinni. Góður hópur drengja af Skaganum létu sjá sig og voru vel merktir sínu liði.

Í hálfleik áttu ungir iðkendur Vals sviðið og stilltu upp í tvö lið og tóku körfuboltaleik sín á milli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira