Hver eiga tekjumörk Landsnets að vera? Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar 13. febrúar 2026 12:33 Landsnet er að fullu í eigu opinberra aðila og að langstærstu leyti í eigu íslenska ríkisins. Líkt og vegakerfi landsins er raforkunetið grunninnviður sem hvorki almenningur né atvinnulíf geta verið án. Uppbygging og rekstur vegakerfisins hefur að mestu verið án sérstaks kostnaðar fyrir notendur og almennt greiða notendur vegakerfisins ekki vegtolla nema í sérstökum afmörkuðum tilfellum. Sem rekstraraðili hefur Landsnet innheimt tekjur á móti rekstri og uppbyggingu raforkukerfisins. Þessu til viðbótar hefur Landsnet á undanförnum árum skilað eigendum sínum arði á grundvelli hækkaðrar gjaldskrár. Þannig hefur flutningskostnaður raforku hækkað um 21% til almennings og til stórnotenda um 36% frá árinu 2020[1]. Þetta er mikið áhyggjuefni út frá sjónarhóli almennings og atvinnulífs og þá ekki hvað síst út frá samkeppnishæfi stórnotenda raforku á Íslandi. Gagnvart líkt þenkjandi ríkjum er raforkukostnaður stórnotenda á Íslandi í dag með því hæsta sem gerist. Lífskjör á Íslandi velta á því hversu mikil samfélagsleg verðmæti er unnt að skapa úr náttúruauðlindum og útflutningsgreinum. Því þarf samkeppnishæfni útflutningsiðnaðar að vera rauði þráðurinn í ríkisfjármálum. Hárfínu jafnvægi þarf stöðugt að viðhalda þar sem útflutningsfyrirtækjum er tryggð samkeppnishæfni á meðan samfélagslegur ávinningur er hámarkaður. Þróttmikið atvinnulíf er undirstaða velferðar og þar er aðgengi að orku á samkeppnishæfu verði lykilatriði. Allar álögur ríkisins, hvort sem þær kallast skattar eða gjöld, arður sérleyfisfyrirtækja eða fyrirtækja í ríkiseign, þarf að meta í þessu stóra samhengi og þar með talið tekjumörk Landsnets. Sérleyfisfyrirtæki ættu að vera með öruggustu fjárfestingum sem hægt er að finna og hvað þá ef eigandinn stjórnar allri umgjörð, þ.m.t. arði fyrirtækisins. Það er því ekki viðeigandi að inn í tekjumörk Landsnets sé gert ráð fyrir sértöku áhættuálagi og það er skammtímaávinningur að gera ráð fyrir arðsemi eigin fjár. Sem eigandi Landsnets innheimtir ríkissjóður ríkulega í formi afleiddra beinna og óbeinna skatta. Ríkið innheimtir skatta af raforkuframleiðendum, raforkusölum, dreififyrirtækjum og raforkunotendum, bæði stórum sem smáum. Það er hins vegar óeðlilegt að ofan á þetta sé gert ráð fyrir arðsemi eigin fjár í Landsneti, ríkisfyrirtækis sem heldur utan um mikilvæga grunninnviði samfélagsins. Til að tryggja samkeppnishæfi íslensks atvinnulífs þarf sanngjarnt regluverk. Nú þegar verið er að setja Landsneti tekjumörk er brýnt að þau endurspegli raunverulegan kostnað og skapi ekki íþyngjandi álögur á atvinnulíf og heimili. Höfundur er framkvæmdastjóri Samáls. [1] Skýrsla Raforkueftirlitsins um þróun raforkukostnaðar frá 12. júní 2025. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðríður Eldey Arnardóttir Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar