Dimmt um hábjartan dag Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 15. febrúar 2026 09:01 Bændur á svæðinu stóðu frammi fyrir miklum áskorunum og í sumum tilfellum þurfti að hýsa búfé inni eða flytja það af svæðinu til að vernda það gegn öskuryki og flúormenguðum jarðvegi. Vísir/Vilhelm Í maí 2011 gaus í einu virkasta eldfjallakerfi landsins sem liggur undir Vatnajökli. Gosið hófst að kvöldi 21. maí og reyndist það öflugasta í Grímsvötnum í um hundrað ár. Gosmökkurinn reis hratt upp í um 20 kílómetra hæð, sást víða að og breiddist út yfir stóran hluta landsins á skömmum tíma.
Aska féll víða um Suðurland og síðar yfir höfuðborgarsvæðið, allt eftir vindátt. Öskufall varð þungt í byggðum undir Vatnajökli og austan við gosstöðvarnar, meðal annars á Kirkjubæjarklaustri. Búfé var haldið inni og íbúar í nálægum sveitum fylgdust náið með upplýsingum frá Almannavörnum. Gestir á Hótel Núpum þurfti að hylja glugga og hurðir til að verjast öskunni.Vísir/Vilhelm Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, gerði sér ferð austur við gosstöðvarnar ásamt Óla Kristjáni Ármannssyni blaðamanni. „Ég ákvað að fara frekar í öskufallið fyrir austan en að reyna að komast í flug yfir Vatnajökul. Við gistum á Hótel Núpum fyrir austan Kirkjubæjarklaustur en gámahótelið var ekki alveg að höndla öskufallið og þurftum við ásamt öðrum að hylja alla glugga og hurðir á hótelinu með dýnum og handklæðum til að reyna að bæta loftið inni.“ Ferðamenn fylgjast með fréttum af gosinu. Inni á hótelinu þurfti fólk að hylja nef og mun vegna mengunar sem komst inn.Vísir/Vilhelm Björgunarsveitarmaður kemur með grímur fyrir gesti á sérútbúnum bíl til að aka í mengun.Vísir/Vilhelm Gestir yfirgefa hótelið eftir að hafa verið fastir þar í sólarhring. Einn ákvað að taka ösku með til minja.Vísir/Vilhelm Björgunarsveit var send á brynvörðum bíl á hótelið með rykgrímur handa gestunum svo hægt væri að fara út í bíl daginn eftir. „Á leiðinni til baka rákumst við á bændur sem voru að koma dýrum inn í hús vegna öskufallsins,“ rifjar Vilhelm upp. Helgi Pálsson, bóndi á Fossi á Síðu, færði skepnum hey.Vísir/Vilhelm Anna Harðardóttir á Hörgslandi teymir á eftir sér hest sem bjarga þurfti í hús.Vísir/Vilhelm Fé rekið í hús á Múlakoti á Síðu til að forða því frá mengun úr eldgosinu.Vísir/Vilhelm Þrátt fyrir umfangið olli gosið ekki miklu beinu tjóni á mannvirkjum, enda var svæðið fjarri þéttbýli. Engu að síður hafði það víðtæk áhrif á flugsamgöngur bæði innanlands og í Evrópu, þar sem flugvöllum var lokað tímabundið vegna öskudreifingar. Bændur þurftu að bregðast skjótt við til að vernda búfé sitt; sauðfé var víða tekin inn í hús til að forðast að þau myndu anda að sér ösku.Vísir/Vilhelm Það var í nógu að snúast á samhæfingarstöðinni á Kirkjubæjarklaustri.Vísir/Vilhelm „Á Klaustri þurftum við ÓlI Kristján blaðamaður sem var með mér að nota GPS tækið í bílnum til að sjá göturnar á Klaustri þar sem endaði ég nokkrum sinnum útaf veginum vegna skyggnis,“ rigjar Vilhelm upp.Vísir/Vilhelm „Allan tímann var sól og blíða nokkur hundruð metra fyrir ofan okkur og bjart allan sólarhringinn- en algjört myrkur hjá okkur,“ rifjar Vilhelm upp.Vísir/Vilhelm Þrátt fyrir dramatískan upphafskafla minnkaði kraftur gossins hratt og var það að mestu gengið yfir í lok maí. Gosið í Grímsvötnum 2011 minnti landsmenn á þann kraft sem býr undir Vatnajökli og mikilvægi öflugs vöktunarkerfis, sem gerir stjórnvöldum og almenningi kleift að bregðast hratt og skipulega við náttúruöflunum.
Einu sinni var... Grímsvötn Eldgos og jarðhræringar Myndasögur Vilhelms Ljósmyndun Mest lesið Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Lífið Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Lífið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Lífið „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Sjá meira