Skipta út stjórnarformanni sem sendi Epstein pyntingamyndband Kjartan Kjartansson skrifar 13. febrúar 2026 15:27 Sultan Ahmed Bin Sulayem er 71 árs gamall. Faðir hans var ráðgjafi konungsfjölskyldunnar í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Vísir/EPA Eitt stærsta flutningsfyrirtæki heims skipti út stjórnarformanni sínum í dag eftir að hann var ítrekaður nefndur í Epstein-skjölunum svonefndu. Hneykslismál formannsins settu viðskiptasamninga fyrirtækisins í uppnám.
Nafn Sultans Ahmed bin Sulayem kemur ítrekað fyrir í skjölum sem bandaríska dómsmálaráðuneytið birti úr rannsóknum sínum á Jeffrey Epstein, barnaníðingi og auðkýfingi. Bin Sulayem er áhrifamikill í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og var hann stjórnarformaður og forstjóri DP World, eins stærsta flutningsfyrirtækis heims. DP World tilkynnti í dag að Essa Kazim tæki við stjórnarformennskunni og að Yuvraj Narayan yrði forstjóri. Bin Sulayem var ekki nefndur sérstaklega á nafn í tilkynningunni, að sögn AP-fréttastofunnar. DP World er aðalstyrktaraðili evrópsku mótaraðarinnar í golfi. Hér sést Sheikh Mansoor bin Mohammed bin Rashid Al Maktoum, sonur leiðtoga furstadæmanna, taka mynd af verðlaunagrip mótaraðarinnar í Dúbaí í vetur.Vísir/EPA Breytingarnar eiga sér stað daginn eftir að kanadískir og breskir fjárfestingasjóðir sögðust ætla að stöðva frekari viðskipti við DP World vegna uppljóstrana um tengsl Bin Sulayem við Epstein. Í tölvupóstum sem gengu á milli Bin Sulayem og Epstein ræddu þeir meðal annars um klæm, kynferðislegt nudd og fylgdarkonur. Þá er Bin Sulayem sagður hafa sent Epstein myndbönd af pyntingum. „Þakka þér vinur minn ég er á leið að prófa nýjan 100% kvenkyns Rússa á snekkjunni minni!“ skrifaði Bin Sulayem til Epstein eftir að Bandaríkjamaðurinn hafði lýst honum sem sínum traustasta vini árið 2013. Þá virðist Bin Sulayem hafa sent Epstein myndband af pyntingum árið 2009. Í það minnsta sagði Epstein honum í tölvupósti að hann hefði „elskað pyntingamyndbandið“.
Mál Jeffrey Epstein Sameinuðu arabísku furstadæmin Bandaríkin Mest lesið Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira