Grátlegt hjá Íslendingaliðinu Valur Páll Eiríksson skrifar 15. febrúar 2026 13:15 Alfons og félagar í vörninni voru örfáum mínútum frá því að ná í mikilvægt stig. ANP via Getty Images Íslendingalið Go Ahead Eagles tapaði naumlega 1-0 fyrir Feyenoord á De Kuip-vellinum í Rotterdam í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Sigurmarkið kom í uppbótartíma eftir hetjulega baráttu tíu leikmanna Arnanna í 75 mínútur.
Tveir Íslendingar gengu í raðir hollenska liðsins í janúar og var Alfons Sampsted í byrjunarliðinu í hægri bakvarðarstöðu Arnanna. Framherjinn Stefán Ingi Sigurðarson sat á varamannabekknum. Samkeppnisaðili Stefáns, framherjinn Thibo Baaten, fékk að líta beint rautt spjald eftir aðeins stundarfjórðungsleik þegar hann traðkaði á sköflungi Oussama Targhalline úr liði Feyenoord. Um óviljaverk var að ræða, en brotið ljótt og Targhalline fór sárþjáður af velli. Ernirnir voru því manni færri það sem eftir lifði leiks en með elju, skipulagi og frábærri frammistöðu markvarðarins Jari de Busser tókst næstum því að ná í markalaust jafntefli. Evert Linthorst gerðist brotlegur innan teigs í uppbótartíma og Casper Tengstedt skoraði það sem reyndist sigurmark Feyenord á 92 mínútu. Alfons spilaði allan leikinn í bakverðinum en Stefán Ingi kom inn á í uppbótartíma, eftir mark Feyenoord. Áðurnefndur Baaten er líklega á leið í þriggja leikja bann vegna brots síns í dag og það gæti opnað möguleika fyrir íslenska framherjann á að vinna sér leið inn í byrjunarliðið. Go Ahead Eagles eru með 23 stig í 15. sæti deildarinnar, fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið. Feyenoord er með 45 stig í öðru sæti, 14 stigum á eftir toppliði PSV Eindhoven sem er langt komið með að tryggja sér hollenska meistaratitilinn.
Hollenski boltinn Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira