Innrás og forsetarán í Venesúela – hvað tekur við? Gylfi Páll Hersir: skrifar 15. febrúar 2026 21:02 Liðinn er rúmur mánuður frá árás Bandaríkjanna á Venesúela og ráninu á Nicolás Maduro, forseta landsins. Árás sem kostaði yfir 100 Venesúelabúa lífið og 32 kúbanska ríkisborgara. Áður höfðu þeir drepið yfir 100 manns utan við strendur Venesúela. Nokkru síðar kom John Ratcliffe yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) til Caracas til fundar við Delcy Rodríguez, varaforsetann sem þá hafði svarið eið sem forseti landsins, í þeim tilgangi að tryggja óheftan aðgang bandarískra fyrirtækja að hinum geysimiklu olíu- og gasauðlindum landsins: framleiðslu, olíuhreinsun og dreifingu. Ekki er gott að segja hvað fram fór á þeirra fundi en í kjölfarið kvaðst Trump hættur við “seinni árásarbylgjuna, það lítur út fyrir að hennar sé ekki lengur þörf”. Kvaðst hann “vinna með” ríkisstjórn Venesúela í þeim tilgangi að koma á jafnvægi og stuðla að umskiptum. “Það veitir mér sérstaka ánægju að tilkynna að bráðabirgðastjórn Venesúela mun afhenda Bandaríkjastjórn milli 30 og 50 milljón tunnur af “haldlagðri [sanctioned] olíu”, var haft eftir Trump um það leyti. Tekjum af sölu olíunnar “verður stýrt af mér.” Þetta jafngildir eins til tveggja mánaða olíuvinnslu Venesúela, eða 2.8 milljörðum dala til Bandaríkjanna. Þá hélt Trump fund í Hvíta húsinu með yfirframkvæmdastjórum Chevron, ExxonMobil, ConocoPhillips og fleirum af stærstu olíufyrirtækjunum og hvatti þá til þess að vinna að 100 milljarða dollara fjárfestingaráætlun í olíuiðnaðinum í Venesúela, og lofaði því að þeir myndu “fá peningana sína til baka eins fljótt og auðið er” og þá “munum við skipta þessu öllu upp.” Olíukóngarnir tóku tilboðinu með opnum huga en kröfðu Bandaríkjastjórn jafnframt um að gera Venesúela “fjárfestingarvænna”. Það “verður að vera ábótasamt fyrir fyrirtæki og hlutafjáreigendur,” Darren Woods forstjóri ExxonMobil, orðaði það svo “Eignir okkar voru teknar þarna í tvígang og þið getið rétt ímyndað ykkur ef við reynum í þriðja sinn, hvort ekki þurfi verulegar breytingar að koma til” hvað varðar lagabókstafinn í Venesúela. Hér voru olíukóngarnir að vitna til þjóðnýtingar olíuiðnaðarins árið1976 þegar Venesúela lýsti endurheimtu fullveldi yfir náttúruauðlindum sínum. Nálægt aldamótum reyndi ríkisstjórn Venesúela að ná meiri stjórn yfir iðnaðinum sem var að mestu í höndum bandarískra fyrirtækja. Þá breytti ríkisstjórn Hugo Chávez skilmálum erlendra fyrirtækja þannig að hluti olíutekna skyldi renna til félagslegra úrbóta sem ekki var vanþörf á. Þessar aðgerðir nutu mikilla vinsælda meðal vinnandi fólks í Venesúela eins og nærri má geta. Allar götur síðan hafa ríkisstjórnir í Bandaríkjunum viðhaft þvingunaraðgerðir af ýmsu tagi á olíu- og gasiðnaðinn í Venesúela og stuðlað þar með að hnignun hans og versnandi efnahag lands og lýðs. Til þess að tryggja að þeir fái ríkulegan gróða af fjárfestingum sínum krefjast olíukóngarnir þess nú að Venesúelabúar gefi eftir fullveldisrétt yfir auðlindinni og viðurkenni yfirráð bandaríska heimsveldisins. Efnahagsþvinganir Bandaríkjanna komu í veg fyrir að flest lönd gætu keypt olíu af Venesúela, Kína varð stærsti kaupandinn og er stærsti fjárfestirinn í landinu. Lán í formi dollara streymdu inn í landið og skuldirnar voru komnar í 44 milljarða 2017. Venesúela borgaði til baka með olíuviðskiptum. Töluverðar fjárfestingar komu einnig frá Rússlandi. “Ef við hefðum ekki gert þetta (þ.e. ráðist á landið), hefði Kína komið og Rússland hefði komið,” sagði Trump. “Með því að leggja Venesúela og Bandaríkin saman, ráðum við yfir 55% olíunnar í heiminum,” bætti hann við. Áhrifin á Kúbu Bandaríkjastjórn hefur nú tekist að koma í veg fyrir allan innflutning olíu til Kúbu undir hótunum um refsiaðgerðir í formi frekari tolla gagnvart þeim ríkjum sem fara ekki að þeirra vilja. Nýlega tókst þeim að þvinga ríkisstjórn Mexíkó með hótunum til þess að hætta að selja og flytja hráolíu til Kúbu. Þessar aðgerðir bætast við hertar aðgerðir ríkisstjórna Trump og Joseph Biden sem þrengja aðgengi Kúbu að heimsmarkaðnum og bankaviðskiptum; matvælum, lyfjum og lækningavörum. Bandaríkin geta gengið enn lengra. Þau gætu takmarkað eða stöðvað allt flug til Kúbu. Þau gætu ráðist á kúbanska lækna og aðra hjálparstarfsmenn í öðrum löndum. Fyrir því eru fordæmi. Þau gætu stöðvað eða takmarkað enn frekar peningasendingar til kúbanskra fjölskyldna frá ættmennum í Bandaríkjunum. Slíkar ráðstafanir eru ekki líklegar til vinsælda því mikill meirihluti Bandaríkjamanna vill eðlileg samskipti þessara ríkja. Ólíklegt er að þau geri tilraun til hernaðarinnrásar í landið, slíkt mundi hafa mikið mannfall í för með sér. Þó hefur löngum sýnt sig að heimsvaldasinnar hafa takmarkaðan skilning á þeim styrk og samstöðu sem þjóðfélagsbyltingar skapa. “Það munu ekki berast fleiri peningar eða olía til Kúbu – núll!” segir Trump þegar hann útleggur stefnu sína. “Ég mæli eindregið með því að þeir semji áður en það verður um seinan.” Ég fjallaði um þetta í skoðanagrein minni á visir.is í lok síðustu viku (https://www.visir.is/.../kuba-og-sviftingar-i-heimsmalunum). Það er helst í fréttum að Kúba hefur aukið innlenda olíuframleiðslu en hún stendur undir þriðjungi orkuþarfa þjóðarinnar. Eins er verið að koma upp fleiri sólarsellugörðum. “Kúbu er frjálst, óháð og sjálfstæð þjóð. Enginn skipar okkur fyrir verkum. Kúba ræðst ekki á önnur lönd, Bandaríkin hafa ráðist á okkur samfellt í 66 ár” segir forseti Kúbu. “Við hótum engum. Við undirbúum okkur, erum reiðubúin til að verja land okkar til síðasta blóðdropa.“ Að lokum þetta: Um helgina var fjallað um ástand mála á Kúbu í hérlendum fjölmiðlum. Morgunblaðið tók viðtal við íslenska eiginkonu sendiherra Bandaríkjanna á Kúbu, fulltrúa þess ríkis sem ber mesta ábyrgð á því hvernig efnahagnum er nú fyrirkomið í landinu. Annar andstæðingur byltingarinnar, Tómas R. Einarsson var í Speglinum á Rúv tvo daga í röð. Tómas spáði falli Kúbustjórnar innan næstu mánaða. Ég er að mestu ósammála Tómasi enda var ýmislegt rangt með farið í þættinum. Það eru haldnar kosningar á Kúbu á 6 ára fresti – þar eru einmenningskjördæmi eins og t.d. í Bretlandi. Kommúnistaflokkurinn hefur engan beinan aðgang að þeim og stór hluti þingmanna er ekki í flokknum. Hann er hins vegar eini flokkurinn í landinu þar sem linnulaust stríðsástand og vel fjármagnaður áróður af hálfu Bandaríkjanna hefur ríkt allar götur frá byltingunni 1959, þar með taldar tilraunir til þess að ráða forystu landsins af dögum. Á þessu hef ég skilning. Uppreisnin 2021 sem Tómas nefnir svo, var ekki hvað síst skipulögð og fjármögnuðu af Bandaríkjunum, það hefur ekki verið borið til baka. Dóma hlutu þeir sem reyndust sekir um ofbeldi og eignatjón. Ekki er pláss hér til að fara nánar út í þetta. Bandaríkjastjórn hefur nú snúið sér beint að efninu. Áherslan hefur hingað til verið á mannréttindi eins og þeim hefur verið tamt áður en ráðist er inn í lönd eða þau rægð. Nú telja þau þjóðarörygginu stafa hætta af Kúbu! Það er með ólíkindum. Samtímis er aðdáunarvert hvernig Kúba hefur getað staðið af sér þetta stanslausa stríð. Hvaða land þolir að skrúfað sé fyrir olíuna ofan á allt annnað? Hvaða þjóð á það skilið? Hvers lags heimur er það sem horfir upp á slíkt athugasemdalaust og hvaða speki er að horfa framhjá þessu þegar reynt er að átta sig á þróun mála í Kúbu? Höfundur situr í stjórn VÍK (Vináttufélagi Íslands og Kúbu) og hefur margsinnis sótt Kúbu heim. Hann er líka áhugasamur um það sem er á seyði í heiminum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gylfi Páll Hersir Mest lesið Verðgæzlustjóri ríkisins gengur aftur Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Eldri maður fer í framboð Ragnar Sverrisson Skoðun Verðbólgukeppni Benedikt S. Benediktsson Skoðun Vöndum okkur Ingibjörg Ólöf Isaksen Skoðun Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir Skoðun Sólveig Anna um stöðu verkafólks innan eða utan ESB Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Vill meirihlutinn í Reykjavíkurborg ekki hlusta á íbúa? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Kærleikur og umburðarlyndi vinstrimanna Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Áskrift í sund á verði Netflix Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Frístundaheimili eru grunnþjónusta Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stefna í fíkniefnamálum á villigötum? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sátt í september verður að ná til allra Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Eldri maður fer í framboð Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Kærleikur og umburðarlyndi vinstrimanna Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Verðgæzlustjóri ríkisins gengur aftur Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Vöndum okkur Ingibjörg Ólöf Isaksen skrifar Skoðun Verðbólgukeppni Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir skrifar Skoðun Frístundaheimili eru grunnþjónusta Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Vill meirihlutinn í Reykjavíkurborg ekki hlusta á íbúa? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íbúasamráð í sveitarfélögum Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Raunverulegt val fyrir foreldra í Hafnarfirði Signý Jóna Tryggvadóttir skrifar Skoðun Þröngt mega sáttir? Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Ungt fólk, sjávarútvegur og framtíð íslensks efnahagslífs Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ælt við dæluna Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Sólveig Anna um stöðu verkafólks innan eða utan ESB Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þurfum við ný lyf? Ragnhildur Reynisdóttir skrifar Skoðun Treður hið opinbera sér í hleðslugatið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Það þarf kjark til að byggja bæ til framtíðar - Kópavogur er í sókn Leifur Andri Leifsson skrifar Skoðun Viska stéttarfélag: Sameinuð og skynsöm rödd til framtíðar Sigrún Einarsdóttir skrifar Skoðun Fyrir enn betri Akureyrarbæ Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Áskrift í sund á verði Netflix Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Kvíðakast einstæðingsins Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Hvað ætlar Akureyri að verða þegar hún verður stór? Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Fjarðarheiðargöng og lenging flugbrautar á Egilsstöðum eru þjóðaröryggismál Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Andstaðan við að tryggja að neytendur fái lækkun við dælu Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í sókn með skýra sýn og hlýja forystu Alexander M Árnason skrifar Skoðun Þegar við lærum að þóknast – og gleymum sjálfum okkur Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir Skoðun
Skoðun Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir skrifar
Skoðun Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar
Skoðun Það þarf kjark til að byggja bæ til framtíðar - Kópavogur er í sókn Leifur Andri Leifsson skrifar
Skoðun Fjarðarheiðargöng og lenging flugbrautar á Egilsstöðum eru þjóðaröryggismál Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar
Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir Skoðun