Veit fólk á samfélagsmiðlum allt um getnaðarvarnir? Jórunn Oddsdóttir og Steinunn Zophoníasdóttir skrifa 16. febrúar 2026 09:33 Hversu mikið af því sem við heyrum um getnaðarvarnir er í raun rétt? Er áhrifavaldurinn á TikTok áreiðanlegur eða kannski bara að reyna að fá sem flest áhorf? Það eru því miður ansi miklar líkur á að það sem við heyrum sé ekki alltaf byggt á rannsóknum eða bestu þekkingu. Það hafa örugglega lang flestar konur heyrt ýmsar útgáfur af lífsseigum en um leið röngum sögum um pilluna, lykkjuna og aðrar getnaðarvarnir. Hér eru nokkrar sögusagnir sem við höfum heyrt ansi oft. Það er skaðlegt heilsunni að sleppa blæðingum með notkun getnaðarvarna. Pillan minnkar frjósemi eða getur valdið ófrjósemi. Konur mega ekki fá lykkjuna fyrr en þær hafa eignast barn. Þetta eru allt lífseigar sögur sem erfitt er að kveða niður. Eins og margar sögur sem ganga á samfélagsmiðlunum eða bara í vinkonuspjalli eru þær allar rangar. Góð reynsla af einstaklingsráðgjöf Við hjá Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins höfum boðið konum og öðrum einstaklingum með leg upp á einstaklingsráðgjöf um getnaðarvarnir í tæplega tvö ár. Reynslan hefur verið virkilega góð, tímar í ráðgjöf bókast venjulega hratt upp og það er mikil ánægja með tímana hjá þeim sem koma. Í getnaðarvarnarráðgjöfinni fer hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir yfir heilsufars- og kynheilbrigðissögu og kynnir ólíkar tegundir getnaðarvarna. Þannig er einstaklingurinn aðstoðaður við að taka upplýsta ákvörðun um hvaða getnaðarvörn henti best hverju sinni. Markmiðið er að auðvelda konum að stjórna sinni frjósemi og fyrirbyggja þungun þegar hennar er ekki óskað. Að sjálfsögðu er fyllsta trúnaðar gætt eins og í öðrum samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk. Konur sem velja að nota ákveðna getnaðarvörn í ráðgjöfinni geta fengið ávísun fyrir hormónagetnaðarvörnum og leiðbeiningar um notkun. Kjósi þær lykkju eða staf er bókaður annar tími fyrir uppsetningu. Tímum fjölgað Í ljósi þess hversu vel sótt ráðgjöfin er höfum við hjá Heilsubrú aukið framboð á tímum verulega. Það er auðvelt að bóka tíma í gegnum mínar síður á Heilsuveru. Kostnaður fyrir ráðgjöf er aðeins 500 krónur, sem er sama upphæð og hefðbundið komugjald á heilsugæslustöð. Sama gjald er greitt fyrir mögulega endurkomu vegna uppsetningar. Ráðgjöfin er í boði fyrir konur hvar sem er á landinu Hún fer fram hjá Heilsubrú í Mjóddinni, eða Heilsugæslunni Hlíðum. Því miður getum við ekki boðið upp á þessi viðtöl í fjarþjónustu eins og er, en við erum að skoða leiðir til að gera það í framtíðinni. Tökum góðar ákvarðanir Við viljum öll taka góðar ákvarðanir um eigið heilbrigði, þar með talið kynheilbrigði. Því miður eru margir sjálfskipaðir sérfræðingar tilbúnir til að veita ýmiskonar ráð á TikTok, Instagram eða bara í spjalli á kaffistofunni og oft erfitt að átta sig á því hvað er rétt og hvað er rangt. Við vitum líka að oft eru getnaðarvarnir valdar út frá reynslu kvenna í nærumhverfinu. Þó að ein tegund getnaðarvarna henti vinkonu eða frænku er ekki þar með sagt að hún henti öllum. Það er sem betur fer auðvelt fyrir konur og aðra einstaklinga með leg að fá réttar upplýsingar um getnaðarvarnir og ráðgjöf um hvað hentar. Fyrsta skrefið er að bóka tíma í getnaðarvarnarráðgjöf hjá okkur í gegnum Heilsuveru. Jórunn Oddsdóttir og Steinunn Zophoníasdóttir, ljósmæður hjá Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilsugæsla Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar