Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Árni Sæberg skrifar 16. febrúar 2026 12:24 Kristinn Jón er varaborgarfulltrúi og Alexandra er borgarfulltrúi Pírata. Vísir Kristinn Jón Ólafsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, gefur kost á sér til þess að leiða lista flokksins í komandi kosningum. Til þessa hefur Alexandra Briem ein gefið kost á sér en prófkjör Pírata í Reykjavík fer fram rafrænt dagana 26. febrúar til 6. mars. „
Reykjavík stendur á tímamótum! Við getum haldið áfram þeirri vinnu að byggja upp framsækna, græna og barnvæna borg eða látið aðra um að leysa áskoranir nútímans með afturhvarfi í gamlar lausnir. Ég gef kost á mér að leiða Pírata í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar - því ég hef áratuga reynslu á að koma mikilvægum breytingum í höfn í oft ósveigjanlegu umhverfi,“ segir Kristinn Jón í framboðstilkynningu á Facebook. Hann hvetur þá sem vilja taka þátt og styðja hann til að skrá sig í Pírata og taka þátt í prófkjörinu. Þeir sem vilja taka þátt í prófkjörinu þurfa að vera orðnir félagar í Pírötum fyrir miðnætti í kvöld. „Sem 45 ára fjölskyldufaðir vil ég leiða borgina inn í mannvæna, græna og örugga framtíð sem byggir á gagnadrifnum ákvörðunum og framúrskarandi þjónustu á forsendum íbúa. Ég vil hlúa að frelsi barnanna okkar í borginni með m.a. vistvænum samgöngum, fjölbreyttum frístundum og aðgengilegum grænum leiksvæðum. Ég trúi því að hægt sé að stuðla að jákvæðum breytingum í enn nánara samráði, samvinnu og sátt við íbúa.“
Píratar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Erlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Fleiri fréttir Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Sjá meira