Viðskipti erlent

Kanna hvort klámfengnar myndir Musk hafi brotið persónuverndarlög

Kjartan Kjartansson skrifar
Grok er spjallmenni samfélagsmiðilsins X. Hann hefur birti ógrynni kynferðislegra mynda af konum og börnum að undanförnu.
Grok er spjallmenni samfélagsmiðilsins X. Hann hefur birti ógrynni kynferðislegra mynda af konum og börnum að undanförnu. Vísir/EPA

Persónuverndarstofnun Írlands, sem hefur eftirlit með stórum samfélagsmiðlum, hefur hafið rannsókn á hvort að X hafi brotið evrópsk persónuverndarlög þegar gervigreindartól miðilsins framleiddi og birti falsaðar kynferðislegar myndir af konum og börnum. 

Holskefla kynferðislegra mynda af konum og börnum byrjaði að ganga yfir X, allsherjaforrit Elons Musk, í vetur. Gervigreindarspjallmennið Grok framleiddi slíkar myndir af raunverulegu fólki að beiðni notenda X og birti á samfélagsmiðlinum.

Grok hikaði til dæmis ekki við að breyta myndum af konum þannig að þær væru klæddar í bikíni skreytt hakakrossum. Gervigreindarforriti átti einnig við myndir af líkum kvenna, þar á meðal konu sem bandarískir innflytjendaeftirlitsmenn skutu til bana í Minneapolis í janúar.

Yfirvöld í fjölda ríkja hefur tekið X og Grok til rannsóknar. Evrópusambandið rannsakar meðal annars hvort X hafi brotið lög um stafræna þjónustu með gervigreindarkláminu. Franskir saksóknarar gerðu nýlega húsleit á skrifstofu X þar í landi vegna kynferðislegu myndanna.

Írska persónuverndarstofnunin sér hins vegar um að framfylgja umfangsmikilli persónuverndarlöggjöf Evrópusambandsins gagnvart samfélagsmiðlarisum sem eru með höfuðstöðvar á eyjunni grænu. Stofnunin getur meðal annars lagt sekt á X sem nemur allt að fjórum prósentum af ársveltu fyrirtækisins á heimsvísu.

Þegar Vísir spurði Persónuvernd hvort að kvartanir hefðu borist um myndir af íslenskum konum eða börnum sem Grok hefði átt við vísaði stofnunin á írsku systurstofnun sína sem sæi um eftirlitið.

Graham Doyle, aðstoðarforstjóri írsku persónuverndarstofnunarinnar, segir rannsóknina umfangsmikla. Hún beinist að því hvort að X hafi uppfyllt ýmsar grundvallarskyldur sínar gagnvart persónuverndarlöggjöfinni.

Dagblaðið Politico segir mögulegt að rannsóknin á X eigi enn eftir að reyna á samskipti bandarískra og evrópskra stjórnvalda. Fulltrúar Bandaríkjastjórnar hafa hótað Evrópumönnum öllu illu vegna þess að þeir síðarnefndu hafa framfylgt evrópskum lögum gagnvart bandarískum fyrirtækjum eins og X.

Bandaríkjastjórn beitti meðal annars fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Evrópusambandinu og baráttufólk gegn hatursorðræðu og upplýsingafalsi á netinu refsiagerðum í vetur á þeirri forsendu að þau hefðu tekið þátt í að þagga niður í „bandarískum sjónarmiðum“.


Tengdar fréttir

Hús­leit hjá X í Frakk­landi vegna barnaníðs­mynda

Franskir saksóknarar gerðu húsleit á skrifstofum samfélagsmiðilsins X í París í dag í tengslum við rannsókn á dreifingu barnaníðs og falsaðra kynferðislegra mynda á miðlinum. Þeir hafa einnig óskað eftir að taka skýrslu af Elon Musk, eiganda X, og forstjóra fyrirtækisins.

Skoða bann við nektar­for­ritum eftir X-hneykslið

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er nú sögð skoða hvort hægt sé að banna snjallforrit sem byggja á gervigreind sem hægt er að nota til þess að búa til falsaðar nektarmyndir af fólki. Samfélagsmiðlinn X hefur legið undir ámæli fyrir að framleiða slíkar myndir af börnum og konum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×