Hvítt í kortunum og snjómokstursteymið í startholunum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 17. febrúar 2026 22:46 Karl segir snjómokstursteymið spennt fyrir því að fá loks að moka snjó. Sýn Deildarstjóri reksturs og þróunar á umhverfissviði Reykjavíkurborgar segir snjómokstursteymi borgarinnar tilbúið fyrir fyrirhugaða snjókomu sem á að hefjast snemma í fyrramálið. Þeir séu spenntir fyrir því að loks fá smá snjó.
Gul veðurviðvörun tók gildi á Suðausturlandi klukkan sex og tekur önnur gul viðvörun gildi á Suðuvesturlandi á miðnætti. Þar má búast við snjókomu með slæmu skyggni. Veðurstofa Íslands hefur einnig spáð mikilli snjókomu á höfuðborgarsvæðinu í fyrramálið. Ekki hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu í lengri tíma en enginn snjór mældist í janúar og ekkert hefur snjóað það sem af er liðið af febrúar. Þá snjóaði töluvert í október á höfuðborgarsvæðinu en í kjölfar þess hlaut Reykjavíkurborg töluverða gagnrýni vegna snjómoksturs. Karl Eðvaldsson, deildarstjóri reksturs og þróunar á umhverfissviði Reykjavíkurborgar, segir snjómokstursteymið undirbúið fyrir spáða snjókomu á morgun. „Við ætlum ekki að láta koma okkur á óvart að minnsta kosti. Við erum með sextíu vélar sem moka fyrir okkur í Reykjavíkurborg þegar mest er. Við erum með allt í startholunum,“ segir Karl í kvöldfréttum Sýnar. „Því er spáð að í fyrramálið, um sexleytið, eigi að koma mikil úrkoma. Vonandi gengur það ekki eftir, þær eru tvísýnar spárnar. Þetta er í raun á þeim tíma sem allir eru á ferðinni á morgun, allir að fara af stað í vinnuna. Ég held að fólk ætti að fara varlega og fresta því að fara að heiman ef það hefur tök á.“ Hann bendir á að mögulega verði skafrenningur svo þrátt fyrir að það sé nýbúið að moka göturnar geti komið kaflar þar sem skafið hefur strax yfir. Á móti kemur að ekki er gert ráð fyrir hálku svo ekki þurfi að salta. Sólarhringsvakt þeirra og Vegagerðarinnar metur aðstæður hverju sinni. „Það er kallað út um leið og aðstæður þykja fara út. Við erum bara tilbúnir og eiginlega pínu spenntir að fá að moka aðeins.“ Nýbúnir að ryksuga göturnar Karl hefur einnig verið að sinna götum borgarinnar vegna mikils svifryks sem hefur verið undanfarið. „Við erum nýbúnir að ryksuga fyrir sirka tveimur vikum síðan. Það dugar ekki til. Við erum búnir að taka allar stofn- og tengibrautir borgarinnar tvisvar í vetur og þetta er mjög erfitt ástand,“ segir hann. „Þessi vetur í heild sinni hefur verið mjög sérstakur. Ég man ekki eftir eins sjólausum vetri og svo öfgarigningin sem var um daginn og snjókoman í október og annað.“
Veður Færð á vegum Reykjavík Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Fleiri fréttir Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Sjá meira