Rannsóknarprófessor og stofnandi Bláa lónsins hlutu Ásuverðlaunin Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 16:07 Sigurður Reynir og Grímur hlutu Ásuverðlaunin. Vísir/Vilhelm Sigurður Reynir Gíslason, rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands, og Grímur Sæmundsen, stofnandi Bláa Lónsins,, hlutu í dag heiðursverðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttir Wright. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, afhenti verðlaunin á Bessastöðum í dag.
Ásuverðlaunin eru ætíð veitt annars vegar íslenskum vísindamanni sem hefur náð framúrskarandi árangri á sínu sérsviði og miðlað þekkingu sinni til framfara í íslensku samfélagi. Hins vegar eru veitt verðlaun til frumkvöðuls sem hefur skarað fram úr í nýsköpun. Sigurður Reynir hefur starfað við Háskóla Íslands frá árinu 1985, fyrst sem fræðimaður og vísindamaður en síðar sem rannsóknarprófessor við Jarðvísindastofnun háskólans. Hann hefur gegnt lykilhlutverki í þróun og framgangi CarbFix-verkefnisins, sem brautryðjandi aðgerðar til að hraða bindingu koltvísýrings í bergi. Eftir Sigurð og samstarfsfólk hans liggja yfir 150 til 200 ritrýndar vísindagreinar. „Rannsóknir Sigurðar Reynis og samstarfsfólks hans hafa haft veruleg áhrif á alþjóðlega umræðu og þróun lausna í loftslagsmálum og kolefnisbindingu og markað honum sess sem einum fremsta jarðefnafræðingi samtímans,“ segir í fréttatilkynningu. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, meðal annars Clair C. Patterson-verðlan Jarðefnasamtaka Bandaríkjanna árið 2018, sem teljast meðal virtustu heiðursverðlauna á sviði jarðefnafræði, og íslensku fálkaorðuna árið 2020. Þróað lónið í einstakan áfangastað Grímur lauk embættisprófi í læknisfræði árið 1981 og framhaldsnámi í íþróttalæknisfræði árið 1985. Hann leiddi til uppbyggingar og þróunar Bláa lónsins hf. frá stofnun félagsins árið 1992. „Undir forystu Gríms hefur Bláa lónið þróast í einstakan áfangastað sem sameinar náttúru, heilsu og vellíðan og byggir á íslenskri baðamenningu. Með þessari sýn hefur Bláa Lónið orðið eitt helsta aðdráttarafl erlendra ferðamanna á Íslandi,“ segir í tilkynningunni. Þar er tekið fram að Bláa lónið hefur þróast í fjölbreytt vistkerfi áfangastaða og starfsemi sem hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna og viðurkenninga. Þar má nefna Bláa lónið, Silica Hotel, The Retreat, veitingastaðinn Moss, Kerlingarfjöll og Blue Lagoon Skin Science. Verðlaunin voru afhent á Bessastöðum fyrr í dag en þau eru nefnd í höfuðið á Ásu Guðmundsdóttur Wright, stofnanda Ásusjóðsins, sem var frumkvöðull á sviði náttúruverndar. Hún var aðalhvatamaður fyrsta náttúrufriðlands Karíbahafsins á eyjunni Trínidad, undan norðausturströnd Venesúela.
Halla Tómasdóttir Bláa lónið Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Sjá meira