Félagslegt réttlæti og geðheilsa Svava Arnardóttir skrifar 20. febrúar 2026 13:00 Í dag, 20. febrúar, er alþjóðlegur dagur félagslegs réttlætis (World Day of Social Justice). Þetta árið er lögð sérstök áhersla á félagslega vernd og mannsæmandi störf fyrir öll. Markmiðið er að renna styrkum stoðum undir alla þá innviði sem gera fólki kleift að eiga fulla hlutdeild í samfélaginu - í stað þess að vera jaðarsett, mismunað eða á einn eða annan hátt útskúfað. Þema dagsins hvetur okkur til að forgangsraða markvissum aðgerðum til að draga úr ójöfnuði, stuðla að inngildingu og reyna hvað við getum til að vernda fólk frá áföllum. Sameinuðu þjóðirnar leggja áherslu á að heilbrigði, þar með talið geðheilbrigði, er ekki einungis heilbrigðismál heldur hafa fjölbreyttir samfélagsþættir á borð við félagslegt net, húsnæðisöryggi, launakjör og félagslega stöðu áhrif á heilsu okkar. Þetta rímar við reynslu okkar hér á Íslandi. Einstaklingar sem takast á við geðheilsubrest eða andlegar áskoranir standa oft frammi fyrir tekjulækkun, ótryggu húsnæði, breyttu starfshlutfalli, breytilegri starfsgetu og brotakenndri þjónustu. Stundum stendur þeim ekki til boða að snúa aftur til fyrri starfa nema þau hafi fulla starfsgetu. Mörg þekkja það að fá ekki líf- eða sjúkdómatryggingar nema með ströngum skilmálum og hærri greiðslum. Sum fá ekki aðgengi að námi eða starfi sem samræmist áhugasviði þeirra sökum þess að þau hafa ákveðnar greiningar eða taka ákveðin lyf. Þetta eru dæmi um hindranir sem snúa að fjölmörgum þeirra sem hafa þurft að vinna að bættri líðan sinni. Þetta eru ekki einstaklingsbundnar áskoranir heldur kerfisbundin vandamál sem snúa að félagslegu réttlæti. Hvað gerist þegar húsnæðisóöryggi eykst, kostnaður og grunngjöld hækka eða þjónusta er komin að þolmörkum vegna álags, undirmönnunar og vanfjármögnunar til langs tíma? Ástandið bitnar fyrst og fremst á þeim sem þegar eru í viðkvæmri stöðu. Á Íslandi má sjá þetta í biðlistum, brotakenndu þjónustuflæði, ójöfnu aðgengi að úrræðum og þeirri staðreynd að mörg þurfa að treysta á hvern þau þekkja og stuðningsnet sitt til að halda sér á floti. Það þarf að styrkja innviði og vinna markvisst að því að tryggja að við tilheyrum öll samfélaginu. Í þema ársins er lögð sérstök áhersla á réttindi á vinnumarkaði, örugga stöðu og mannsæmandi störf. Fólk með geðrænar áskoranir upplifir einmitt oft hindranir í að komast inn á vinnumarkað, halda vinnu eða fá viðeigandi aðlögun. Hægt er að fjármagna fleiri sértæk úrræði á borð við IPS (Individual placement and support) atvinnutengla og fjölga stöðum jafningjastarfsmanna, það er fólks sem ráðið er á forsendum lifaðrar reynslu af andlegum áskorunum. Áframhaldandi og aukin þátttaka fólks með persónulega reynslu við mótun þjónustu og stefnu skiptir máli. Það þarf að vinna markvisst með kerfisbundnar hindranir að fullri samfélagsþátttöku okkar allra. Það þarf að fjölga hlutastörfum, ekki síst í kjölfar breytinga á örorkulífeyriskerfinu og hlutaörorku. Þar ættu ríki og sveitarfélög að vera í fararbroddi að ráða einstaklinga sem vilja og hafa getu til að vinna hlutastörf. Við þurfum líka að halda áfram að opna umræðu um geðheilbrigðisvanda og gera hvað við getum til að uppræta fordóma í garð andlegra áskorana. Vissir þú til dæmis að einir rótgrónustu fordómarnir ríkja meðal heilbrigðisstarfsfólks samkvæmt rannsóknum? Geðhjálp hefur í áratugi unnið út frá hugmyndafræði félagslegs réttlætis: að tryggja að fólk með geðræna erfiðleika njóti sömu réttinda, tækifæra og virðingar og önnur. Geðheilsa er samfélagsmál, ekki einkamál. Ef Ísland ætlar sér að vera samfélag sem byggir á jafnrétti, mannréttindum og félagslegri vernd, þá er tími til kominn að horfa á geðheilbrigði sem eitt kjarnamála félagslegs réttlætis. Höfundur er formaður Geðhjálpar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Svava Arnardóttir Geðheilbrigði Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar