Forstjórahringekjan Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir og Hildur Ösp Gylfadóttir skrifa 24. febrúar 2026 09:03 Undanfarið hafa birst fréttir af forstjórum ríkisstofnana þar sem þeir hafa fengið tilkynningu um að staða þeirra verði auglýst að skipunartíma liðnum. Sumir líta svo á að þar með njóti þeir ekki trausts ráðherra og óska eftir að hætta þá þegar en aðrir sitja út skipunartíma sinn. Ráðherra skal tilkynna forstjóra ríkisstofnunar með sex mánaða fyrirvara um að staða hans verði auglýst sé ætlunin sú. Óháð því hvort forstjóri sitji út sinn skipunartíma þegar tilkynnt hefur verið að til standi að auglýsa stöðuna eða einhver annar er settur tímabundið í stöðuna tekur við skrýtið tímabil innan stofnunar þar sem umboð til athafna er afar takmarkað. Órói er algengur hjá starfsfólki þegar það veit ekki hvað bíður þess og minni starfsánægja og minni afköst fylgja. Valdabarátta getur átt sér stað á þessum tímapunkti sem veldur sérstöku róti hjá millistjórnendum og svokallað „status quo“ er einkennandi. Þetta er kostnaðarsamt sem og ráðningaferlið, sem er jafnframt tímafrekt. Ákveði ráðherra að tilkynna ekki um auglýsingu starfs framlengist skipunartími forstjóra í embætti sjálfkrafa um fimm ár. Í skýringum með lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins kemur fram að skipunartími til fimm ára tryggi sérstakt starfsöryggi embættismanna. En er tímabundin ráðning til fimm ára með möguleika á framlengingu á fimm ára fresti form sem ætti að viðhalda? Töfratalan 5 Þegar nýr forstjóri tekur við embætti fer hinn dæmigerði fimm ára ferill í gang. Sá ferill einkennist gjarnan af því að í upphafi er annaðhvort nýbúið að fara í gegnum stefnumótunarvinnu eða nýr forstjóri hefur slíka vinnu. Fyrstu mánuði í starfi er viðkomandi að læra á starfið, kynnast samstarfsfólkinu og í raun að lesa í stöðuna og átta sig á verkefnum. Þá er starfsöryggið mikið og eftir nokkra mánuði eða um eitt ár hefur forstjórinn yfirsýn til að hefja það breytingaferli sem viðkomandi telur nauðsynlegt til að framtíðarsýnin raungerist. Því fylgir oft breytingar á skipulagi, hlutverkum, verkferlum, meðferð fjármagns og samskiptum innan vinnustaðarins. Fyrstu árin einkennast því af breytingum og krafti. Jafnan er nýr forstjóri hugrakkur við ákvarðanatöku, frekar óttalaus við afleiðingar af óvinsælum ákvörðunum í embætti ef allt er eðlilegt og stuðningur ráðherra og ráðuneytis fylgir. Eftir þrjú til fjögur ár í starfi eru breytingar oftast farnar að skila árangri og nýjar áherslur orðnar merkjanlegar í rekstri stofnunar. Einn mælikvarði fyrir það er Stofnun ársins, annar er heldni við rekstraráætlun og fjárlög. Slyngur forstjóri veit líka að þegar vel er komið á fjórða ár í embætti er best að taka ekki slagi sé hjá því komist. Hjá vel læsum, stefnumiðuðum forstjórum kunna síðustu 12-18 mánuðirnir af skipunartímanum að einkennast af ákveðnum biðleik þar sem reynt er að halda dampi, draga góða hluti fram en erfiðum málum gjarnan frestað. Þetta er eðlileg og mannleg hegðun af hálfu forstjórans til að auka líkur á áframhaldandi starfi en kann að vera dýrkeypt módel fyrir samfélagið okkar þar sem hætta er á ákveðinni stöðnun innan hlutaðeigandi stofnunar og þar með þjónustu við almenning. Við viljum auðvitað að fólk hafi viðvarandi hvata til að standa sig vel í starfi en þessi fimm ára ráðningartími er takmarkandi enda vita allir sem hafa komið að stjórnun að breytingar eru erfiðar og ástandið verður stundum verra áður en það verður betra. Að sama skapi eru ráðherrar líka bundnir af þessari fimm ára skipan þannig að komi í ljós að forstjóri er ekki að valda starfi sínu af einhverjum ástæðum á tímabilinu er afar ólíklegt að ráðherra stígi inn og taki á því. Slíkir forstjórar sitja þá oft í fimm ár og geta valdið ómældum skaða innan stofnunar. Frammistöðumat á fimm ára fresti hljómar í eyrum flestra óskynsamlega! Tiltal ráðherra við forstjóra er algengt form vegna alvarlegri mála en afar sjaldgæft er að áminning sé veitt eða knúið sé á um afsögn nema í algerum undantekningartilvikum sem þá gjarnan einkennist af fjölmiðlaumfjöllun um afglöp sitjandi forstjóra og spjótin farin að beinast að ábyrgð viðkomandi ráðherra. Fimm ára skipunartími í embætti má líkja við skeiðklukku. Þegar dregur að lokadagsetningu er líklegt að bæði viðkomandi forstjóri og ráðherra séu farnir að halda niðri í sér andanum, hvað verður ákveðið, hvernig viðbrögð fær ákvörðunin í samfélaginu? Þetta er ekki heilbrigt ráðningarsamband og engum sem að því koma til heilla. Breytum leiknum Árið er 2026! Í dag vitum við betur hvað virkar og hvað virkar ekki þegar kemur að áhrifaríkri mannauðsstjórnun. Forstjórar eru líka fólk og sömu lögmál eiga við um þá og annað starfsfólk. Hvatar eins og traust og sálfélagslegt öryggi eru lykilþættir þess að ná árangri. Heilbrigt ráðningarsamband veltur á skýrum viðfangsefnum, greinargóðum frammistöðumælikvörðum, virku samtali og endurgjöf. Það þarf jafnframt að vera svigrúm til mistaka því þannig næst fram árangur. Svo komast megi hjá þeirri sóun sem óhjákvæmilega fylgir tímabundinni skipun í embætti mætti leiða ráðningu í embætti nær því sem þekkist á einkamarkaðnum. Þess þarf að gæta að uppsögn í starfi sé hvorki geðþóttaákvörðun né pólitísk ákvörðun heldur afleiðing samtals ráðherra og forstjóra um skort á árangri, stefnuleysi eða langvarandi samskiptavanda. Þarna er Alþingi í lófa lagt að laga lögin þannig að þau stuðli að heilbrigðu rekstrarfyrirkomulagi stofnana sem þekkist vel í rekstri góðra fyrirtækja. Horfast þarf í augu við þá staðreynd að forstjórastörf hjá ríkinu eru ekki alltaf „heitustu störfin“ hjá umsækjendum þó sannarlega sé hægt að segja að það hitni oft undir þeim í umræðunni. Reynslan sýnir að það þarf að gera þau meira aðlaðandi þannig að hæfasta fólkið fáist til starfa og það haldist sátt í starfi. Í því felst að það þarf að vera skýrt til hvers er ætlast af viðkomandi í starfi og áhersla lögð á opin og heiðarleg samskipti milli ráðuneytis og forstjóra. Að sama skapi sé það eðlilegt að finna leiðir til að hlutaðeigandi láti af störfum gangi hlutirnir ekki upp án þess að það leiði til persónulegrar hneisu eða brennimerkingar í fjölmiðlum. Fimm ára skipunartími í embætti er mannanna verk og óhjálplegur rammi báðum aðilum sem undir hann rita. Þetta fyrirkomulag er dýrt á allan máta. Finnum árangursríkari leið til árangurs í ríkisrekstri, breytum leiknum! Höfundar hafa langa reynslu af stjórnun hjá hinu opinbera. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stjórnsýsla Vinnumarkaður Mannauðsmál Mest lesið Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Vill fólk að leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun