Viljum við ekki örugga leikskóla? Pétur Halldórsson skrifar 24. febrúar 2026 17:00 Það skiptir foreldra öllu máli að börnin okkar fái að alast upp, leika og læra í öruggu og heilnæmu umhverfi. Því miður er það svo í samfélaginu okkar að þrátt fyrir þær forvarnir sem við höfum byggt upp þá geta hlutir farið úrskeiðis eins og nýleg atvik hafa minnt okkur á. Matareitrunin á Mánagarði er sorglegt dæmi um þetta, þar sem börn urðu fyrir miklum skaða, og oft er erfitt að greina hætturnar í okkar daglega umhverfi áður en skaðinn er skeður. Heilbrigðiseftirlitið gegnir lykilhlutverki í vörnum samfélags okkar gegn þessum hættum og nýtist sérþekking heilbrigðisfulltrúa til að fyrirbyggja slíkar aðstæður. Hlutverk heilbrigðiseftirlitsins er þannig meðal annars að tryggja það að við sem foreldrar getum verið viss um að börnin okkar dvelji við öruggar aðstæður. Ef upp kemur grunur um myglu, mengun, galla eða óöruggar aðstæður – hvar sem er á landinu, þá bregst heilbrigðiseftirlitið við. Þjónusta sem þarf að haldast órofin Þegar rætt er um uppstokkun eða breytingar á opinberri þjónustu er mikilvægt að horfa á heildarmyndina. Breytingar á stjórnsýslu stofnana geta tekið 3–5 ár, jafnvel lengur, og á því tímabili eru raunverulegar líkur á að þjónusta rofni eða veikist. Þegar um er að ræða eftirlit með leikskólum, öldrunarheimilum, sundlaugum og matvælum – þá er órofin og stöðug þjónusta ekki lúxus, heldur lífshættulega mikilvæg. Ef verkefni heilbrigðiseftirlitsins eru færð til margra ólíkra stofnana er hætt við að gloppur myndist í varnarkerfinu. Slíkar gloppur geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir þau sem minnst geta varið sig: börn, aldraða og viðkvæma einstaklinga. Byggjum á áratuga reynslu – án niðurrifs Tímarnir breytast og mennirnir með og eðlilegt er að eftirlit taki breytingum en það má vel aðlaga og bæta kerfið án þess að fara í algera uppstokkun. Í stað þess að leggja niður heilbrigðiseftirlitið má styrkja það skref fyrir skref – eins og gert hefur verið frá því það var fyrst fest í lög árið 1901. Þróunin hefur alla tíð gengið út á að efla fagmennsku, bæta ferla og tryggja að eftirlitskerfið standist nútímakröfur í gegnum tímans rás. Slík framþróun krefst ekki stórfellds niðurrifs, heldur varfærinna og vandaðra umbóta. Með því móti tryggjum við samfellt og stöðugt eftirlit, jafnvel á meðan breytingar eru unnar. Það er einfaldlega ábyrgasta leiðin þegar öryggi barna og annarra viðkvæmra hópa er í húfi. Hverju viljum við fórna? Börn eiga rétt á að leikskólar séu öruggir, hreinir og lausir við mengum og slysahættu. Við foreldrar eigum rétt á að vita að eftirlitskerfið sem sér um að vernda þau sé sterkt, skýrt og órofið, en ekki á milli handa margra mismunandi stofnana með óljósa ábyrgð á mismunandi verkefnum sem skarast. Þegar við fjöllum um kerfisbreytingar megum við því ekki gleyma einföldustu en jafnframt mikilvægustu spurningunni: Viljum við ekki tryggja börnin okkar sem best? Höfundur er heilbrigðisfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Börn og uppeldi Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira