Þjálfari danska landsliðsins með augun á gamla Valsaranum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. febrúar 2026 18:16 Kasper Waarst Högh fagnar einu marka sinna fyrir Bodö/Glimt í Meistaradeildinni. Getty/Chris Brunskill Frammistaða danska knattspyrnumannsins Kasper Högh í Meistaradeildarævintýri Bodø/Glimt gæti tryggt honum framherjastöðuna í danska landsliðinu þegar Danmörk keppir um sæti í lokakeppni HM í næsta mánuði.
Þetta segir landsliðsþjálfarinn Brian Riemer við Viaplay Sport News. Högh hefur staðið sig frábærlega með Bodö/Glimt og verður aftur í sviðsljósinu í kvöld þegar liðið spilar seinni leik sinn á móti Internazionale. „Áður fyrr var hægt að setja spurningamerki við það að hann spili uppi í Noregi og skori mörk gegn liðum í norsku deildinni. Hversu góður er hann í raun og veru? En þeirri umræðu getum við lokið núna. Það sem hann hefur sýnt gegn stórliðum eins og Manchester City, Atlético Madrid og Inter er á svo háu stigi að það verður að taka það alvarlega,“ sagði Brian Riemer við Viaplay. Høgh stóð sig einnig vel í Evrópudeildinni í fyrra og Riemer segir að hann hafi þegar í fyrrahaust tilkynnt Högh að hann væri undir smásjánni. „Það hefur margt gerst hjá honum síðan þá og það hefur verið frábært að fylgjast með. Ég get upplýst að Kasper kemur mjög sterklega til greina þegar kemur að valinu fyrir umspil undankeppni HM í mars,“ sagði Riemer. Högh hefur spilað með yngri landsliðum Danmerkur, síðast árið 2019. Sumarið eftir varð hann Íslandsmeistari með Valsmönnum í Pespi Max-deildinni 2020. Þann 26. mars næstkomandi gæti Högh leikið sinn fyrsta A-landsleik þegar Norður-Makedónía verður mótherjinn í Parken í undanúrslitum umspilsins. Ef Danmörk vinnur þann leik verður úrslitaleikur um sæti á HM á útivelli gegn Írlandi eða Tékklandi nokkrum dögum síðar. Leikur Internazionale og Bodö/Glimt verður í beinni útsendingun á Sýn Sport á eftir en útsendingin fer í loftið klukkan 19.50. Á undan verður hitað upp fyrir alla leiki kvöldsins.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira