Býður sig fram í embætti varaformanns VG Atli Ísleifsson skrifar 25. febrúar 2026 10:02 Bjarki Hjörleifsson. Bjarki Hjörleifsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti varaformanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi hreyfingarinnar sem fram fer á Selfossi 7. til 8. mars næstkomandi.
Í tilkynningu segir Bjarki að ákvörðunin sé tekin í kjölfar hvatningar frá félögum í hreyfingunni víðsvegar af landinu. Forysta Vinstri grænna verður endurnýjuð á komandi landsfundi en bæði Svandís Svavarsdóttir, formaður flokksins, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson varaformaður hafa tilkynnt að þau sækist ekki eftir áframhaldandi setu í sínum embættum. Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur þegar tilkynnt að hún sækist eftir formennsku. Í tilkynningunni segir að Bjarki hafi víðtæka reynslu af öllum hliðum flokksstarfsins. „Hann hóf störf fyrir hreyfinguna sem kosningastjóri í Norðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum árið 2017 og gegndi því hlutverki aftur árið 2021. Í kosningum árið 2024 skipaði hann 2. sæti á framboðslista flokksins í sama kjördæmi. Þá hefur hann jafnframt starfað á flokksskrifstofu VG og fyrir þingflokk Vinstri grænna á árunum 2019 til 2024, en það ár tók hann við starfi aðstoðarmanns Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur, þáverandi matvælaráðherra. Samhliða þessu hefur Bjarki sinnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum og situr í dag í stjórn Vinstri grænna í Reykjavík. Framboðið byggir á því skýra markmiði að nýta þessa reynslu til að efla innra starf hreyfingarinnar og takast á við þau fjölmörgu og spennandi verkefni sem að vinstrið stendur frammi fyrir,“ segir í tilkynningunni. Spennandi en krefjandi tímar Haft er eftir Bjarka að við stöndum frammi fyrir spennandi en krefjandi tímum. „Mín reynsla á öllum stigum flokksstarfsins hefur sýnt mér hvar styrkleikar okkar liggja og hvar við getum gert enn betur. Verkefnið fram undan er skýrt, að þétta raðirnar, efla starf flokksins um allt land og tryggja að við mætum sterk til leiks í komandi kosningum. Við þurfum að byggja okkur upp að nýju og huga að endurnýjun í stórum málaflokkum, um leið og við byggjum á dýrmætri reynslu og sögu hreyfingarinnar,“ er haft eftir Bjarka. Hann leggur áherslu á að stjórnmál eigi að vera á mannamáli og að mæta þurfi stórum samfélagsbreytingum af framsýni. „Við eigum að byggja mannvænt samfélag þar sem jöfnuður er í fyrirrúmi og virðing fyrir fólki, óháð kyni, uppruna, stöðu eða stétt er í hávegum höfð. En vinstrimennskan verður líka að vera á mannamáli. Fólk þarf að vinna og framfleyta sér á sama tíma og við þurfum að þora að hugsa út fyrir boxið. Það eru gríðarlegar samfélags- og atvinnubreytingar í farvatninu og við á vinstri vængnum eigum að leiða þá vegferð“ er haft eftir Bjarka. „Ég sé fyrir mér framtíð þar sem skapandi hugsun og tæknilausnir skipa stærri sess, ekki til þess að skapa hagvöxt í blindni, heldur til að standa undir öflugri samneyslu þar sem við tryggjum sanngirni og skiptum gæðunum jafnt, á sama tíma og við lifum og störfum í sátt og samlyndi við náttúruna.“
Vinstri græn Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira