Gengst við framhjáhaldi með tveimur rússneskum konum Magnús Jochum Pálsson skrifar 25. febrúar 2026 15:44 Bill Gates gengst við því að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni með tveimur rússneskum konum sem hann kynntist gegnum Epstein en tekur fram að hann hafi ekki tekið þátt í neinu „ólöglegu“. Getty/Hou Yu Milljarðamæringurinn Bill Gates hefur viðurkennt að hafa haldið framhjá fyrrverandi eiginkonu sinni með tveimur rússneskum konum, annars vegar briddsspilara og hins vegar kjarneðlisfræðingi. Bað hann starfsfólk sitt afsökunar á tengslum sínum við Jeffrey Epstein en tók þó fram að hann hefði ekki tekið þátt í neinu „ólöglegu“.
Gates hélt fjölmennan starfsmannafund Gates-sjóðsins (e. Gates Foundation) í gær, líkt og hann gerir tvisvar á ári, þar sem hann svaraði fjölbreyttum spurningum starfsmanna, meðal annars um gervigreind, Epstein-skjölin og annað. „Ég gerði ekkert ólöglegt. Ég sá ekkert ólöglegt,“ sagði Gates á fundinum um samskipti sín við Epstein samkvæmt upptöku sem The Wall Street Journal er með undir höndunum. Talsmaður Gates sagði við bandaríska miðilinn People að Bill hefði á fundinum „talað tæpitungulaust, svarað spurningum af mikilli nákvæmni og axlað ábyrgð á gjörðum sínum.“ Tengsl Bill Gates við Jeffrey Epstein hafa verið undir smásjá eftir útgáfu Epstein-skjalanna fyrir skömmu. Meðal skjala sem þar má finna er póstur sem Epstein virðist hafa skrifað 2013 en aldrei sent út. Epstein sagði þar að Gates hefði haft mök við „rússneskar stúlkur“ og beðið um hjálp við útvega sér lyf vegna kynsjúkdóms svo það kæmist ekki upp um hann. Melinda Gates, fyrrverandi eiginkona Bill, sagði hann þurfa að svara fyrir bréfið og ásakanirnar sem væru settar fram þar. Bill Gates sagðist fyrr í þessum mánuði sjá eftir hverri mínútu sem hann varði með Epstein. Hann hefði þó ekki notað Epstein til að hafa mök við konur né smitast af kynsjúkdómi. Nú hefur Gates hins vegar breytt frásögn sinni. Á fundinum sagðist hann hafa haldið við „rússneskan briddsspilara sem hann kynntist á briddsviðburðum“ og „rússneskan kjarneðlisfræðing sem hann kynntist gegnum atvinnustarfsemi“. Þá hefur WSJ eftir Gates á fundinum að hann hefði ekki varið neinum tíma með „fórnarlömbunum, konunum kringum [Epstein]“. Gates sagði vitandi það sem hann vissi nú gerði samveru þeirra „hundrað sinnum verri“ bæði vegna eldri glæpa Epstein og áframhaldandi glæpa auðjöfursins meðan þeir voru að kynnast. Þá sagði Gates að tengsl hans við Epstein og nýlega afhjúpuð samskipti þeirra hafi varpað skugga yfir stofnun hans, störf þess og orðstír. „Þetta er algjörlega öfugt við gildi sjóðsins og markmiða sjóðsins,“ sagði Gates jafnframt á fundinum.
Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Microsoft Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Sahara Ray látin Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Hvað veistu um… Nylon? Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira