Auka vægi VAR á HM Valur Páll Eiríksson skrifar 1. mars 2026 09:00 VAR fær aukið vægi á HM. James Gill - Danehouse/Getty Images Hornspyrnur og seinni gul spjöld verða til skoðunar á meðal myndbandsdómara á HM karla í fótbolta í sumar. Bætt er við umfang myndbandsdómgæslu á stóra sviðinu.
Aðgerðir til að bregðast við tapi á hraða í leikjum og til að draga úr tímasóun verða einnig kynntar. Þar á meðal verður sérstakur tímarammi með niðurtalningu fyrir markspyrnur, innköst og skiptingar. Þetta var kynnt af IFAB, sem hefur umsjón með knattspyrnulögunum. Samtökin samþykktu tillögurnar á aðalfundi sínum í gær. Breytingarnar taka gildi 1. júní og eiga við um tímabilið 2026-27. Þær verða því komnar í gagnið þegar HM hefst í júní. IFAB samþykkti einnig frekari tilraunir með hugsanlegar breytingar á rangstöðu og að ráðfæra sig um aðgerðir til að berjast gegn því að leikmenn hylji munninn þegar þeir mæta andstæðingum í leikjum. Það er til komið eftir meint kynþáttaníð Argentínumannsins Gianluca Prestianni í garð Vinicius Junior í leik Benfica og Real Madrid á dögunum. Alþjóðasambandið FIFA hefur eindregið stutt útvíkkun á umfangi VAR þegar það getur fljótt leiðrétt ákvarðanir sem eru greinilega rangar. Margar evrópskar deildir höfðu þó sagt að aðgerðir sem gætu aukið tafir væru ekki ásættanlegar. Það átti sérstaklega við um hornspyrnur. FIFA var staðráðið í að endurskoða hornspyrnur á HM og barðist eindregið fyrir því. Þar sem deildirnar eru á móti því geta þær valið hvort þær samþykki að skoða hornspyrnu með VAR á næsta ári. Ekki er búist við að enska úrvalsdeildin geri það. Talið er að UEFA sé einnig á móti því, en ítalska Serie A mun líklega samþykkja það. Meiri stuðningur var við þá hugmynd að VAR ætti að skoða ranglega dæmd seinni gul spjöld. Fyrr í þessum mánuði var varnarmaður Juventus, Pierre Kalulu, rekinn af velli með annað gult spjald eftir að Alessandro Bastoni, leikmaður Inter Milan, féll til jarðar eftir litla snertingu.
Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Andrea og Ragnhildur enduðu jafnar Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Skilja vináttuna eftir utan vallar Ollie Kane kynntur til leiks Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Skoraði sneggstu þrennu sögunnar í sturluðum sigri „Hann breytti kúlturnum“ Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Dagskráin í dag: Heldur Antonelli uppteknum hætti? Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Sjá meira