Sykursýki 2 orðin að heimsfaraldri Anna Lind Fells skrifar 2. mars 2026 09:00 Fyrir aðeins nokkrum áratugum greindist sykursýki 2 nær eingöngu hjá fullorðnum. En í dag er myndin allt önnur. Sjúkdómurinn hefur læðst niður aldurspýramídann og birtist nú hjá unglingum og jafnvel börnum. Heimsfaraldur efnaskiptatruflana 1 af hverjum 9 fullorðnum á aldrinum 20–79 ára er með sykursýki 2, og meira en 4 af hverjum 10 vita ekki að þeir séu með sjúkdóminn (heimild). Sykursýki 2 stendur nú fyrir um 90–95% allra sykursýkistilfella í heiminum Hún þróast oft smám saman yfir mörg ár og getur verið einkennalaus lengi. Þegar einkenni koma fram eru þau gjarnan væg og ósértæk, til dæmis aukinn þorsti, tíð þvaglát, þreyta, svefnleysi, þokusýn og þyngdaraukning. Langvarandi hækkaður blóðsykur hefur víðtæk áhrif á starfsemi líkamans og tengist fjölda alvarlegra sjúkdóma. Sykursýki er ein helsta orsök blindu á heimsvísu og eykur verulega líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, þar á meðal hjartaáfalli og heilablóðfalli. Hún er einnig ein af meginorsökum getuleysis hjá körlum, sem endurspeglar skemmdir á æðakerfinu og taugaboðum. Og ákveðin krabbamein eru tíðari hjá fólki með sykursýki 2 (heimild). Á innan við einni kynslóð (30–50 ár) hefur sykursýki af tegund 2 þróast úr því að vera sjaldgæfur sjúkdómur í að verða heimsfaraldur og telst nú eitt stærsta lýðheilsuvandamál heims. Það vekur upp spurningar sem við verðum að spyrja: Hvað breyttist svona snögglega? Og af hverju er “heilbrigt” fólk að glíma við blóðsykursójafnvægi, orkuleysi og þreytu í daglegu lífi? Er sykursýki 2 ólæknandi sjúkdómur? Í dag líta margir læknar á sykursýki af tegund 2 sem langvinnan og ólæknandi sjúkdóm. Þessi trú hefur skapað þá hugmynd að þegar þú færð þessa greiningu sé engin leið til baka og að sjúkdómurinn versni smám saman þar til þú endar á insúlíni. Þrátt fyrir lyfjameðferð hefur verið sýnt fram á að sykursýki 2 geti stytt meðalævi um allt að tíu ár. Lyfin eru auk þess ekki án áhættu, þar sem þau geta haft fjölmargar aukaverkanir. Sykursýki af tegund 2 er oft vel meðhöndlanleg og áhrifaríkasta leiðin til að snúa þróun sjúkdómsins við er með markvissum lífsstílsbreytingum, þar sem jafnvægi er komið á mataræði, hreyfingu, svefn og streitu. Þannig getur blóðsykur færst aftur í eðlileg mörk, án lyfja. Því miður hefur almenn stefna í meðferð við sykursýki 2 þróast í þá átt að leggja megináherslu á ævilanga lyfjameðferð og jafnvel skurðaðgerðir. Í stað þess að takast á við rót vandans, lífsstíl, mataræði og efnaskiptajafnvægi, beinist meðferðin í dag að því að halda einkennum niðri, frekar en að snúa ferlinu við. Eins og Dr. Jason Fung skrifar í bók sinni The Diabetes Code: „Þú getur ekki notað lyf til að lækna sjúkdóm sem orsakast af mataræði. Hvað veldur insúlínviðnámi? Insúlínviðnám lýsir því þegar frumur líkamans verða „ónæmar“ fyrir insúlíni, sem neyðir líkamann til að framleiða meira insúlín til að halda blóðsykri í skefjum. Insúlínviðnám myndast sjaldnast á einni nóttu. Það þróast smám saman þegar líkaminn er stöðugt í ástandi þar sem insúlín er hátt, oft árum eða áratugum saman. Algengustu orsakirnar tengjast nútíma lífsstíl og mataræði, reykingum, áfengi og hreyfingarleysi. Ein helsta orsökin er kolvetnaríkt fæði, sérstaklega þegar kolvetni koma að stórum hluta úr sykri, hveiti og sterkju. Slík fæða veldur endurteknum hækkunum á blóðsykri og insúlíni, sem með tímanum gerir frumurnar ónæmar fyrir boðum hormónsins. Önnur mikilvæg orsök er mikil neysla á gjörunninni fæðu, sem er orkuþétt en næringarsnauð. Slík fæða stuðlar að ofgnótt orku án þess að líkaminn fái þau næringarefni sem hann þarf til að starfa eðlilega. Djúpsteikt og mikið unnin fæða, sérstaklega þegar unnið er með iðnaðarframleiddar jurtaolíur eins og soja-, repju-, sólblóma- og maísolíu við háan hita og þær jafnvel endurnotaðar ítrekað, getur það aukið oxunarálag og bólgusvörun í líkamanum. Slíkt langvarandi bólguástand er einn af lykilþáttum sem tengjast þróun insúlínviðnáms. Að lokum skipta tíð máltíðamynstur, stöðugt snakk, skortur á hreyfingu, svefnleysi og langvarandi streita einnig miklu máli. Allir þessir þættir halda insúlíni krónískt hækkuðu og hindra líkamann í að brenna eigin fitu. Hvað hjálpar líkamanum að leiðrétta insúlínviðnám? Til að snúa insúlínviðnámi við þarf að skapa aðstæður þar sem insúlín fær tækifæri til að lækka og frumurnar endurheimta næmi sitt. Þar skiptir mataræði, föstur og hreyfing lykilmáli. Fitu- og próteinríkt mataræði hefur reynst sérstaklega áhrifaríkt í þessu samhengi. Prótein eykur seddu, styður við vöðvamassa og hjálpar til við að halda blóðsykri stöðugum. Vöðvar hjálpa líkamanum að nýta og brenna orku, í stað þess að hún sé geymd sem fita Góð fita hækkar blóðsykur lítið sem ekkert og veldur ekki mikilli insúlínlosun. Hún styður jafnframt við hormónajafnvægi, heilastarfsemi og efnaskipti. Dæmi um slíka fæðu eru egg, kjöt, fiskur, innmatur, smjör, tólg, ólífuolía, avókadó og aðrar náttúrulegar fitur. Regluleg hreyfing, sérstaklega styrktarþjálfun, eykur insúlínnæmi vöðvanna og hjálpar líkamanum að beina orku inn í vöðvafrumur frekar en að geyma hana sem fitu. Föstur, til dæmis lotubundin fasta eða 24 klst. fasta einu sinni í viku, geta einnig hjálpað með því að lækka insúlín og gefa líkamanum svigrúm til að nýta eigin fitubirgðir. Svefn og streitustjórnun eru ekki síður mikilvægir þættir, þar sem svefnskortur og hátt kortisól geta aukið insúlínviðnám jafnvel þrátt fyrir hreint mataræði. Þetta eru augljósustu þættirnir sem skipta sköpum þegar markmiðið er að snúa við insúlínviðnámi, en einnig hafa aðrir þættir áhrif, svo sem fita í líffærum, ljós, dægursveifla, tímasetning máltíða og næringarefni. Eitt af því áhugaverðasta er að insúlínviðnám tengist ekki bara „fitu á líkamanum“, heldur líka því hvar fitan safnast fyrir. Þegar líkaminn fær endurtekið meiri orku en hann nær að nota fyllast fyrst orkuforðar, sérstaklega í lifur, sem getur truflað eðlilega insúlínsvörun. Dægursveiflan stýrir einnig miklu um blóðsykurstjórnun, sem þýðir að ljós, svefnrútína og tímasetning máltíða geta skipt meira máli en fólk heldur. Líkaminn er almennt næmari fyrir insúlíni fyrri part dags, svo fyrir marga hjálpar að borða meira fyrri partinn, hafa léttari kvöldmat og gefa sér lengra næturhlé frá mat, í stað þess að halda insúlíni stöðugt virku fram á kvöld. Dagsljós snemma dags, reglulegur svefn og minni skjábirta á kvöldin styður sömuleiðis þessa náttúrulegu dægursveiflu. Að lokum geta steinefni og bætiefni verið gagnleg viðbót, sérstaklega þegar skortur er til staðar, til dæmis magnesíum og króm, einnig D-vítamín eða omega-3. Lokaorð Allir þessir þættir vinna saman, oft án þess að við gerum okkur grein fyrir því. Lélegur svefn eykur streitu, streita kveikir sykurlöngun og sykurneysla hækkar insúlín. Þannig myndast keðjuverkandi hringrás sem hægt er að rjúfa, með einu skrefi í einu. Þegar við byrjum að stilla þessa grunnþætti, mataræði, svefn, streitu, hreyfingu og lífsstíl, fer líkaminn að endurheimta sitt náttúrulega jafnvægi. Þá kemur fram sú orka sem heldur okkur gangandi án koffíns og sykurs. Raunveruleg og stöðug orka sem líkaminn framleiðir sjálfur, sem byggir á heilbrigðri efnaskiptastarfsemi. Höfundur er Functional Medicine heilsuráðgjafi.hjá fyrirtækinu Holistic ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Svakaleg saga um ofbeldi á vinnustað Ævar Örn Jóhannsson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Hvers vegna fer miðaldra kona í framboð? Bryndís Rut Logadóttir Skoðun Er kominn tími til að leyfa milliakreinaakstur? Njáll Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Byggjum meira félagslegt húsnæði í Reykjavík Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Börnin í Laugardalnum eiga betra skilið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Sjómenn á smábátum hafa verið saminingslausir í rúm 12 ár Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar Skoðun Og þeir skoðra og þeir skoða og skora og skora á ný Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Eru vísindi „tabú“ í almannaumræðu? Loftslagsmál upplýst Ágúst Kvaran skrifar Skoðun Belonging Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Nýtum kosningaréttinn Sigurður Kári Harðarson,Sólveig Jóhannesdóttir Larsen skrifar Skoðun Sterk rödd eldri borgara Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson skrifar Skoðun Hin heillandi fortíðarþrá Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Tækifæri í rusli Lísbet Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvers vegna fer miðaldra kona í framboð? Bryndís Rut Logadóttir skrifar Skoðun Þegar við höfnuðum „Viljandi villt“ Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson skrifar Skoðun Unga fólkið heim aftur Adam Ingi Guðlaugsson skrifar Skoðun Er kominn tími til að leyfa milliakreinaakstur? Njáll Gunnlaugsson skrifar Skoðun Aukning starfsmanna Reykjavíkurborgar Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Reykjavík - Hið skapandi hjarta Guðmundur Ingi Þorvaldsson skrifar Skoðun Það er gott í Kópavogi Elísabet Sveinsdóttir skrifar Skoðun Blásið á bull V-listans og Miðflokksins Friðjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi og ábyrgð Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Umtalsverður hávaði undanskilinn aðgerðaráætlun um hávaðamengun Daði Rafnsson,Kristján Vigfússon,Martin Swift skrifar Skoðun Viðsnúningur til hins verra í rekstri Hveragerðisbæjar á kjörtímabilinu Friðrik Sigurbjörnsson,Alda Pálsdóttir skrifar Sjá meira
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun
Skoðun Sjómenn á smábátum hafa verið saminingslausir í rúm 12 ár Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar
Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir skrifar
Skoðun Umtalsverður hávaði undanskilinn aðgerðaráætlun um hávaðamengun Daði Rafnsson,Kristján Vigfússon,Martin Swift skrifar
Skoðun Viðsnúningur til hins verra í rekstri Hveragerðisbæjar á kjörtímabilinu Friðrik Sigurbjörnsson,Alda Pálsdóttir skrifar
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun