Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar 28. október 2026 06:00 Það er eitt viðfangsefni sem hefur verið mér sérstaklega hugleikið undanfarin misseri. Það er einmanaleikinn. Ekki síst nú þegar daginn tekur að stytta og skammdegið færist yfir. Fyrir mörg okkar er þessi árstími notalegur. Fyrir aðra getur þessi sami tími verið erfiður. Kyrrðin verður meiri, kvöldin lengri og fjarvera annarra sárari. Ég hef alla tíð haft mikla ánægju af því að vera í kringum fólk. Mér finnst fátt dýrmætara en mannleg samskipti en að mínu mati eru mannleg samskipti ein mikilvægasta undirstaða góðs samfélags. Það er sárt að hugsa til þess að á sama tíma og aldrei hefur verið auðveldara að ná sambandi við annað fólk þá upplifa of margir að þeir hafi engan til að tala við. Það er hægt að vera umkringdur fólki en upplifa sig samt einan. Einmanaleikinn spyr ekki um aldur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin birti árið 2025 umfangsmikla skýrslu um einmanaleika. Þar kemur fram að um einn af hverjum sex einstaklingum í heiminum upplifi einmanaleika. Samkvæmt mati stofnunarinnar tengist einmanaleiki yfir 871 þúsund ótímabærum dauðsföllum árlega. Þetta eru sláandi tölur. Á bak við hverja tölu er manneskja, einstaklingur með sögu, tilfinningar, vonir og væntingar. Einmanaleikinn spyr ekki um aldur. Hann getur fylgt barninu sem finnur sig ekki í hópnum, unglingnum sem upplifir sig utangarðs, einstaklingnum sem missir maka eða þeim sem stendur á tímamótum í lífinu. Það sem gerir einmanaleikann svo erfiðan er meðal annars hversu ósýnilegur hann getur verið. Við vitum nefnilega ekki alltaf hvað býr að baki brosinu. Sá sem virðist glaður og félagslyndur getur farið heim í tómt hús og upplifað mikla einsemd. Við tölum mikið um mikilvægi hreyfingar, mataræðis og þess að hugsa vel um líkamann. Allt er þetta mikilvægt. En við þurfum líka að hugsa um félagslega heilsu okkar. Að eiga einhvern að, að tilheyra, að finna að maður skipti máli. Við lifum á tímum þar sem við mælum ótrúlega margt. Fylgjendur, læk og áhorf. En við mælum sjaldnar hversu margir eiga einhvern sem þeir geta hringt í þegar lífið verður erfitt. Einhvern sem hlustar án þess að dæma. Þegar allt kemur til alls eru það einmitt þessi tengsl sem skipta mestu máli. Ekki hversu margir fylgjast með lífi okkar í gegnum miðlana heldur hversu margir taka raunverulegan þátt í því. Það þarf svo lítið til að breyta svo miklu En hvað getum við gert? Hvernig getum við brugðist við þessum þögla vanda sem snertir svo marga? Svarið byrja hjá okkur sjálfum. Við þurfum að gefa okkur tíma til að rauverulega sjá fólkið í kringum okkur. Ekki bara heilsa í flýti heldur staldra við. Við þurfum að spyrja hvernig fólki líður og vera tilbúin að hlusta. Við getum hringt í einhvern sem við höfum ekki heyrt í lengi. Boðið nágranna í heimsókn, tekið nýjum samstarfsfélaga opnum örmum eða boðið þeim sem stendur utan hópsins að vera með. En við megum heldur ekki leggja alla ábyrgðina á þann sem upplifir einmanaleika. Það er auðvelt að segja fólki að fara út, hitta aðra eða taka þátt í félagsstarfi. En fyrir þann sem hefur lengi verið einn getur slíkt verið gríðarlega stórt skref. Þess vegna þurfum við hin að vera tilbúin að stíga skrefið á móti. Ekki bara segja „þú ert alltaf velkominn“, heldur mæta, bjóða með og fylgja viðkomandi inn í hópinn. Stundum er munurinn á því að tilheyra og standa fyrir utan einfaldlega sá að einhver tekur utan um mann og segir: „Komdu, vertu með okkur.“ Höfum í huga að eitt boð eða eitt símtal leysir ekki endilega vandann. Mannleg tengsl verða til með tíma, nærveru og því að sýna aftur og aftur að okkur sé ekki sama. Þarna skiptir samfélagið allt máli. Skólar, vinnustaðir, félagasamtök og nærumhverfið okkar þurfa að vera staðir þar sem fólk finnur að það tilheyri. Lífið getur verið erfitt, stundum ósanngjarnt og við göngum öll í gegnum tímabil þar sem reynir á. En við höfum val um hvernig við mætum öðru fólki. Við getum valið hlýju fram yfir afskiptaleysi, áhuga fram yfir áhugaleysi og samveru í raunheimum fram yfir samveru í gegnum miðlana. Við getum breytt ótrúlega miklu með litlum hlutum. Við þurfum ekki að hafa öll svörin eða leysa öll vandamálin. Við þurfum fyrst og fremst að vera til staðar fyrir hvert annað. Kannski er einhver í kringum okkur sem hefur beðið lengi eftir símtali. Kannski er einhver sem langar að vera boðið með en þorir ekki að spyrja. Kannski er einhver sem þarf einfaldlega að heyra að hann skipti máli. Verum manneskjan sem hringir. Manneskjan sem býður. Manneskjan sem tekur eftir. Við vitum aldrei hvaða baráttu fólkið í kringum okkur er að heyja. En við vitum að hlýja og umhyggja geta skipt sköpum. Nú þegar skammdegið færist yfir er gott að minna sig á að við getum ekki alltaf lýst upp dagana hjá öðrum en við getum gert þá hlýrri. Ef við getum með nærveru okkar gert lífið aðeins bjartara fyrir eina manneskju þá höfum við þegar gert eitthvað sem skiptir máli. Þegar öllu er á botninn hvolft snýst lífið ekki bara um dagana sem við lifum heldur fólkið sem við deilum þeim með. Enginn á að upplifa að hann skipti engu máli. Valdimar Víðisson, skólastjóri Húsaskóla og bæjarfulltrúi Framsóknar í Hafnarfirð Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Hafnarfjörður Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun