Skoðun

Ríkið þrengir að frelsi og sam­keppni á fjölmiðla­markaði

Gísli Stefánsson skrifar

Tjáningarfrelsi fylgir ábyrgð en hlutverk ríkisins er ekki að stjórna því hvernig fólk tjáir sig. Einstaklingurinn á að njóta frelsisins en um leið að bera ábyrgð á eigin orðum. Því er áhyggjuefni þegar ríkið teygir regluverk sitt yfir nýja miðla, beitir sektum og rekur á sama tíma fjölmiðlafyrirtæki sem nýtur opinbers fjármagns og keppir við einkaaðila um auglýsingatekjur. Þetta er ekki heilbrigt umhverfi fyrir frjálsa og fjölbreytta fjölmiðlun sem reiða sig á tjáningarfrelsið.

Hlaðvörpin tekin sérstaklega fyrir

Hlaðvörp hafa á undanförnum árum skapað nýjan vettvang fyrir umræðu og afþreyingu. Einstaklingar hafa með eigin vinnu og útsjónarsemi byggt upp vinsæla miðla, oft með litlum tilkostnaði. Flestir gera þetta af áhuga en fæstir geta lifað af starfseminni.

Fjölmiðlanefnd hefur hins vegar gert kröfu um að tiltekin hlaðvörp skrái sig sem fjölmiðla. Dæmi eru um að hlaðvarpsstjórnendur sem eru ekki sammála kröfu nefndarinnar hafi fengið sektir upp á hálfa milljón króna fyrir að láta sér ekki segjast. Sektirnar komu meira að segja þrátt fyrir að stjórnvöld hefðu þegar boðað breytingar á lögunum með það að markmiði að hefðbundin hlaðvörp yrðu almennt ekki skráningarskyld. Er virkilega nauðsynlegt að beita einstaklinga hálfrar milljónar króna sektum fyrir að skrá ekki hlaðvarp sem fjölmiðil?

Ríkið veikir samkeppni og styrkir svo keppinautana

Á sama tíma og ríkið leggur kvaðir á sjálfstæða miðlun rekur það Ríkisútvarpið fyrir milljarða króna árlega. Tekjur RÚV voru tæplega 9,4 milljarðar króna árið 2025 og þar af komu um 2,6 milljarðar frá auglýsingum og kostun. Á sama tíma hefur Sýn fundið sig knúið til að hætta kvöldfréttatíma sínum.

Samkeppniseftirlitið benti þegar árið 2008 á alvarlega samkeppnislega mismunun vegna þátttöku RÚV á auglýsingamarkaði samhliða opinberri fjármögnun. Vandinn hefur því legið ljós fyrir í tæpa tvo áratugi og ekki veit ég til þess að samkeppniseftirlitið hafi skoðað þessi mál eitthvað frekar.

Í stað þess að taka á vandanum með afgerandi hætti hefur ríkið komið á fót styrkjakerfi fyrir einkarekna fjölmiðla. Ríkið keppir þannig við einkaaðila um auglýsingatekjurnar en greiðir þeim síðan styrki úr ríkissjóði. Það er mótsögn sem erfitt er að réttlæta.

Nú hafa verið kynnt áform um takmörkun auglýsingatekna RÚV. Þar hefur verið lagt til að setja þak á auglýsingatekjur RÚV að upphæð 2,8 milljarðar. Þess má geta að RÚV hefur aldrei náð þeirri upphæð í auglýsingatekjur.

Þarf þetta að vera svona?

Ég hef áður bent á að tekjur RÚV eru af sambærilegri stærðargráðu og heildartekjur Vestmannaeyjabæjar. Annars vegar er um að ræða sveitarfélag sem heldur úti umfangsmikilli grunnþjónustu og innviðum og byggir tekjur sínar á öflugum atvinnuvegum og hins vegar opinbert fjölmiðlafyrirtæki. Samanburðurinn segir ekki alla söguna en sýnir vel hversu stór reksturinn er orðinn.

RÚV hefur mikilvægu almannaþjónustuhlutverki að gegna. Það þýðir hins vegar ekki að ríkið þurfi að reka jafn umfangsmikið fjölmiðlafyrirtæki og raun ber vitni eða keppa um auglýsingatekjur á sama markaði og einkaaðilar. Ég tel að draga eigi RÚV út af almennum auglýsingamarkaði, afmarka betur hlutverk þess og einfalda regluverk sjálfstæðrar miðlunar. Ríkið á að standa vörð um tjáningarfrelsi og fjölbreytni í fjölmiðlun, ekki þrengja að þeim sem reyna að fóta sig á markaðnum.

Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.




Skoðun

Sjá meira


×