Sykursýki 2 orðin að heimsfaraldri Anna Lind Fells skrifar 2. mars 2026 10:00 Fyrir aðeins nokkrum áratugum greindist sykursýki 2 nær eingöngu hjá fullorðnum. En í dag er myndin allt önnur. Sjúkdómurinn hefur læðst niður aldurspýramídann og birtist nú hjá unglingum og jafnvel börnum. Heimsfaraldur efnaskiptatruflana 1 af hverjum 9 fullorðnum á aldrinum 20–79 ára er með sykursýki 2, og meira en 4 af hverjum 10 vita ekki að þeir séu með sjúkdóminn (heimild). Sykursýki 2 stendur nú fyrir um 90–95% allra sykursýkistilfella í heiminum Hún þróast oft smám saman yfir mörg ár og getur verið einkennalaus lengi. Þegar einkenni koma fram eru þau gjarnan væg og ósértæk, til dæmis aukinn þorsti, tíð þvaglát, þreyta, svefnleysi, þokusýn og þyngdaraukning. Langvarandi hækkaður blóðsykur hefur víðtæk áhrif á starfsemi líkamans og tengist fjölda alvarlegra sjúkdóma. Sykursýki er ein helsta orsök blindu á heimsvísu og eykur verulega líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, þar á meðal hjartaáfalli og heilablóðfalli. Hún er einnig ein af meginorsökum getuleysis hjá körlum, sem endurspeglar skemmdir á æðakerfinu og taugaboðum. Og ákveðin krabbamein eru tíðari hjá fólki með sykursýki 2 (heimild). Á innan við einni kynslóð (30–50 ár) hefur sykursýki af tegund 2 þróast úr því að vera sjaldgæfur sjúkdómur í að verða heimsfaraldur og telst nú eitt stærsta lýðheilsuvandamál heims. Það vekur upp spurningar sem við verðum að spyrja: Hvað breyttist svona snögglega? Og af hverju er “heilbrigt” fólk að glíma við blóðsykursójafnvægi, orkuleysi og þreytu í daglegu lífi? Er sykursýki 2 ólæknandi sjúkdómur? Í dag líta margir læknar á sykursýki af tegund 2 sem langvinnan og ólæknandi sjúkdóm. Þessi trú hefur skapað þá hugmynd að þegar þú færð þessa greiningu sé engin leið til baka og að sjúkdómurinn versni smám saman þar til þú endar á insúlíni. Þrátt fyrir lyfjameðferð hefur verið sýnt fram á að sykursýki 2 geti stytt meðalævi um allt að tíu ár. Lyfin eru auk þess ekki án áhættu, þar sem þau geta haft fjölmargar aukaverkanir. Sykursýki af tegund 2 er oft vel meðhöndlanleg og áhrifaríkasta leiðin til að snúa þróun sjúkdómsins við er með markvissum lífsstílsbreytingum, þar sem jafnvægi er komið á mataræði, hreyfingu, svefn og streitu. Þannig getur blóðsykur færst aftur í eðlileg mörk, án lyfja. Því miður hefur almenn stefna í meðferð við sykursýki 2 þróast í þá átt að leggja megináherslu á ævilanga lyfjameðferð og jafnvel skurðaðgerðir. Í stað þess að takast á við rót vandans, lífsstíl, mataræði og efnaskiptajafnvægi, beinist meðferðin í dag að því að halda einkennum niðri, frekar en að snúa ferlinu við. Eins og Dr. Jason Fung skrifar í bók sinni The Diabetes Code: „Þú getur ekki notað lyf til að lækna sjúkdóm sem orsakast af mataræði. Hvað veldur insúlínviðnámi? Insúlínviðnám lýsir því þegar frumur líkamans verða „ónæmar“ fyrir insúlíni, sem neyðir líkamann til að framleiða meira insúlín til að halda blóðsykri í skefjum. Insúlínviðnám myndast sjaldnast á einni nóttu. Það þróast smám saman þegar líkaminn er stöðugt í ástandi þar sem insúlín er hátt, oft árum eða áratugum saman. Algengustu orsakirnar tengjast nútíma lífsstíl og mataræði, reykingum, áfengi og hreyfingarleysi. Ein helsta orsökin er kolvetnaríkt fæði, sérstaklega þegar kolvetni koma að stórum hluta úr sykri, hveiti og sterkju. Slík fæða veldur endurteknum hækkunum á blóðsykri og insúlíni, sem með tímanum gerir frumurnar ónæmar fyrir boðum hormónsins. Önnur mikilvæg orsök er mikil neysla á gjörunninni fæðu, sem er orkuþétt en næringarsnauð. Slík fæða stuðlar að ofgnótt orku án þess að líkaminn fái þau næringarefni sem hann þarf til að starfa eðlilega. Djúpsteikt og mikið unnin fæða, sérstaklega þegar unnið er með iðnaðarframleiddar jurtaolíur eins og soja-, repju-, sólblóma- og maísolíu við háan hita og þær jafnvel endurnotaðar ítrekað, getur það aukið oxunarálag og bólgusvörun í líkamanum. Slíkt langvarandi bólguástand er einn af lykilþáttum sem tengjast þróun insúlínviðnáms. Að lokum skipta tíð máltíðamynstur, stöðugt snakk, skortur á hreyfingu, svefnleysi og langvarandi streita einnig miklu máli. Allir þessir þættir halda insúlíni krónískt hækkuðu og hindra líkamann í að brenna eigin fitu. Hvað hjálpar líkamanum að leiðrétta insúlínviðnám? Til að snúa insúlínviðnámi við þarf að skapa aðstæður þar sem insúlín fær tækifæri til að lækka og frumurnar endurheimta næmi sitt. Þar skiptir mataræði, föstur og hreyfing lykilmáli. Fitu- og próteinríkt mataræði hefur reynst sérstaklega áhrifaríkt í þessu samhengi. Prótein eykur seddu, styður við vöðvamassa og hjálpar til við að halda blóðsykri stöðugum. Vöðvar hjálpa líkamanum að nýta og brenna orku, í stað þess að hún sé geymd sem fita Góð fita hækkar blóðsykur lítið sem ekkert og veldur ekki mikilli insúlínlosun. Hún styður jafnframt við hormónajafnvægi, heilastarfsemi og efnaskipti. Dæmi um slíka fæðu eru egg, kjöt, fiskur, innmatur, smjör, tólg, ólífuolía, avókadó og aðrar náttúrulegar fitur. Regluleg hreyfing, sérstaklega styrktarþjálfun, eykur insúlínnæmi vöðvanna og hjálpar líkamanum að beina orku inn í vöðvafrumur frekar en að geyma hana sem fitu. Föstur, til dæmis lotubundin fasta eða 24 klst. fasta einu sinni í viku, geta einnig hjálpað með því að lækka insúlín og gefa líkamanum svigrúm til að nýta eigin fitubirgðir. Svefn og streitustjórnun eru ekki síður mikilvægir þættir, þar sem svefnskortur og hátt kortisól geta aukið insúlínviðnám jafnvel þrátt fyrir hreint mataræði. Þetta eru augljósustu þættirnir sem skipta sköpum þegar markmiðið er að snúa við insúlínviðnámi, en einnig hafa aðrir þættir áhrif, svo sem fita í líffærum, ljós, dægursveifla, tímasetning máltíða og næringarefni. Eitt af því áhugaverðasta er að insúlínviðnám tengist ekki bara „fitu á líkamanum“, heldur líka því hvar fitan safnast fyrir. Þegar líkaminn fær endurtekið meiri orku en hann nær að nota fyllast fyrst orkuforðar, sérstaklega í lifur, sem getur truflað eðlilega insúlínsvörun. Dægursveiflan stýrir einnig miklu um blóðsykurstjórnun, sem þýðir að ljós, svefnrútína og tímasetning máltíða geta skipt meira máli en fólk heldur. Líkaminn er almennt næmari fyrir insúlíni fyrri part dags, svo fyrir marga hjálpar að borða meira fyrri partinn, hafa léttari kvöldmat og gefa sér lengra næturhlé frá mat, í stað þess að halda insúlíni stöðugt virku fram á kvöld. Dagsljós snemma dags, reglulegur svefn og minni skjábirta á kvöldin styður sömuleiðis þessa náttúrulegu dægursveiflu. Að lokum geta steinefni og bætiefni verið gagnleg viðbót, sérstaklega þegar skortur er til staðar, til dæmis magnesíum og króm, einnig D-vítamín eða omega-3. Lokaorð Allir þessir þættir vinna saman, oft án þess að við gerum okkur grein fyrir því. Lélegur svefn eykur streitu, streita kveikir sykurlöngun og sykurneysla hækkar insúlín. Þannig myndast keðjuverkandi hringrás sem hægt er að rjúfa, með einu skrefi í einu. Þegar við byrjum að stilla þessa grunnþætti, mataræði, svefn, streitu, hreyfingu og lífsstíl, fer líkaminn að endurheimta sitt náttúrulega jafnvægi. Þá kemur fram sú orka sem heldur okkur gangandi án koffíns og sykurs. Raunveruleg og stöðug orka sem líkaminn framleiðir sjálfur, sem byggir á heilbrigðri efnaskiptastarfsemi. Höfundur rekur heilsufyrirtækið Holistic ehf og starfar þar sem Functional Medicine heilsuráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Anna Lind Fells Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun