Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. mars 2026 20:38 Þórdís Jóna Sigurðardóttir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu segir niðurstöður prófanna geta nýst vel. Vísir/Einar Í fyrsta skipti í fimm ár voru samræmd próf lögð fyrir grunnskólanemendur landsins. Þrátt fyrir minni háttar tæknivandræði fyrri hluta dags segir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu að próftakan hafi almennt gengið vel. „
Auðvitað er frábært að þetta sé komið í loftið og loksins farið af stað, þetta er búið að vera töluvert löng fæðing,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Í fyrsta sinn síðan árið 2021 voru samræmd könnunarpróf, eða svokölluð stöðu- og framvindupróf, lögð fyrir nemendur á öllum stigum grunnskóla. Ólíkt því sem var áður hafa forsvarsmenn skólanna fjórar vikur til að leggja prófin fyrir nemendur og er þeim heimilt að leggja þau fyrir alla nemendur í fjórða til tíunda bekk. Hins vegar er nemendum í fjórða, sjötta og níunda bekk skylt að spreyta sig á prófinu. „Við bjuggumst við því að það gæti komið upp ýmislegt varðandi tæknina og það kom aðeins upp í morgun. En við vorum með teymi sem var viðbúið og það var allt keyrt í gang og komið í fulla virkni upp úr hádegi,“ segir Þórdís. Áhersla á að vinna með niðurstöðurnar Endurkoma prófanna hefur verið lengi í bígerð en fyrir ári síðan spreyttu nemendur 26 skóla sig á prófinu sem eins konar forprófun. „Það sem við gerðum núna í janúar, við endurskoðuðum viðmiðin í lesprófunum, svokölluð hraðlestrarpróf. Þannig sýndum við niðurstöðurnar á aðgengilegri hátt og með meiri eftirfylgni til þess að hægt sé að nýta niðurstöðurnar sem best,“ segir Þórdís. „Okkar mantra er að það er til lítils að senda börnin í þessi próf ef ekki er unnið með niðurstöðurnar. Það er mikil áhersla á það hérna.“ Hún telur það mikilvægt að foreldrar og kennarar fái sem ítarlegastar upplýsingar um hvert og eitt barn til að vinna með. Það nýtist skólakerfinu í heild og hægt sé að sjá skýrt á blaði hvernig menntakerfið er að þróast. „Við höfum verið í svo miklu myrkri fram að þessu og það vantar svo mikið af verkfærum svo við vonum að þetta verði til þess að styrkja námsárangur nemenda.“ Til stendur að birta niðurstöður prófanna opinberlega eftir skólum og árgöngum.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira