Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Kjartan Kjartansson skrifar 3. mars 2026 08:57 Gistihýsin sem eru byrjuð að rísa á jörðunum Skaftafelli III og IV. Þau mega vera sex metra há og fjörutíu fermetrar að grunnfleti. Leyfi er fyrir allt að sjötíu slíkum húsum. Jón Ágúst Guðjónsson Hópur eigenda og ábúenda á jörðum nærri þjóðgarðinum í Skaftafelli var ekki talinn eiga hagsmuni sem gæfi honum aðild til þess að krefjast þess að framkvæmdir við tugi gistihýsa yrðu stöðvaðar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði kæru þeirra frá í síðustu viku.
Ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Circle Hotels reisti þrettán gistihýsi á jörðunum sem eru á milli þjóðvegarins og Skaftafells í Vatnajökulsþjóðgarði. Heimild er til þess að byggja allt að sjötíu slík hús á tveimur jörðum: Skaftafelli III og IV. Landeigendur og ábúendur í Öræfum sem voru ósáttir við framkvæmdirnar kærðu ákvörðun byggingarfulltrúa sveitarfélagsins Hornafjarðar um að samþykkja uppbygginguna til úrskurðarnefndarinnar í janúar. Krafðist hópurinn þess að ákvörðunin yrði felld úr gildi en til vara að gistihýsunum verði fækkað og þau lækkuð. Vildi hann jafnframt að framkvæmdirnar yrðu stöðvaðar tímabundið. Of langt í burtu og óbeinir fjárhagslegir hagsmunir dugðu ekki til Byggðu kærendurnir meðal annars á því að þó að jarðir þeirra lægju ekki að byggingarsvæðinu þá hefðu þeir mjög gott útsýni yfir þjóðgarðinn frá bæjarstæðum sínum. Gistihýsaþyrpingin hefði því veruleg áhrif á útsýnið. Töldu þeir þetta hafa áhrif á verðgildi fasteigna sinna. Vísuðu þeir einnig til þess að þeir rækju allir nema einn gistiþjónustu fyrir ferðamenn og því hefði uppbygging allt að sjötíu gistihýsa veruleg áhrif á hagsmuni þeirra. Úrskurðarnefndin gaf lítið fyrir þau rök. Jarðir kærenda væru allar í töluverðri fjarlægð frá gistihúsabyggðinni. Sú sem væri næst væri í sex kílómetra fjarlægð og á milli hennar og þjóðgarðsins væri nú þegar hótel, veitingastaður og ýmis önnur hús í Freysnesi. Vegna fjarlægðar taldi nefndin að hagsmunir kærenda ættu ekki eftir að skerðast á nokkurn hátt við uppbygginguna hvað varðaði skuggavarp, landnotkun og innsýn. Þótt nokkurra sýndaráhrifa gætti á svæðinu gætu kærendurnir ekki talist eiga verulega hagsmuni undir sem skapaði þeim aðild til þess að kæra framkvæmdinar í ljósi fjarlægðarinnar. Þá hafnaði nefndin rökum kærendanna um að gistirekstur þeirra skapaði þeim aðild að málinu. Þeir óbeinu fjárhagslegu eða samkeppnislegu hagsmunir leiddu almennt ekki til kæruaðildar í stjórnsýslurétti.
Skipulag Stjórnsýsla Sveitarfélagið Hornafjörður Umhverfismál Ferðaþjónusta Vatnajökulsþjóðgarður Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira