Innherji

Kaupa atNorth á háum verðmarg­faldara líkt og þekkt er við sölu gagna­vera

Hörður Ægisson skrifar
Veruleg aukning hefur verið í samrunum og yfirtökum á gagnaversmarkaði undanfarin misseri og ár, drifið áfram af uppgangi gervigreindarfyrirtækja sem kallar á mikla orkuöflun og fjárfestingu.
Veruleg aukning hefur verið í samrunum og yfirtökum á gagnaversmarkaði undanfarin misseri og ár, drifið áfram af uppgangi gervigreindarfyrirtækja sem kallar á mikla orkuöflun og fjárfestingu.

Miðað við áætlaðan rekstrarhagnað atNorth, sem byggir meðal annars á þegar tryggðum samningum við viðskiptavini, þá var fjögurra milljarða dala verðlagningin á félaginu í sölu til CPP og Equinix nokkuð í takti við þá háu verðmargfaldara sem þekkjast í viðskiptum með gagnaver sem geta stækkað frekar og mætt eftirspurn frá tæknifyrirtækjum á sviði gervigreindar.


Tengdar fréttir

Mögu­leiki á sæ­streng til Bandaríkjanna 2027 sem myndi „gjör­breyta stöðunni“

Hagmunasamtök iðnaðarins eiga núna í samtali við stjórnvöld vegna hugmynda um lagningu sæstrengs til Bandaríkjanna, sem gæti þá opnað fyrir uppbyggingu gervigreindargagnavera hér á landi, og náist niðurstaða á allra næstu mánuðum væri raunhæft að slíkur strengur yrði tekin í notkun sumarið 2027. Það myndi „gjörbreyta stöðu“ Íslands í gervigreindarkapphlaupinu og skilað miklum útflutningstekjum.

Ardian hyggst fjór­falda um­svif Ver­ne og leggja gagna­verunum til 163 milljarða

Franska sjóðastýringarfyrirtækið Ardian mun leggja gagnaverum Verne, sem meðal annars er með starfsemi á Íslandi, til 1,2 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði 163 milljarða króna, til að vaxa í Norður-Evrópu og fjórfalda þannig umsvifin. Eftir kaupin hefur Ardian, sem á Mílu, fjárfest fyrir jafnvirði um það bil 120 milljarða á Íslandi. „Við erum einn stærsti erlendi fjárfestir á Íslandi og höfum mikla trú á landinu,“ segir framkvæmdastjóri hjá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×