Keppir á Steraleikunum en ætlar líka á næstu Ólympíuleika Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2026 08:00 Hunter Armstrong með Ólympíuverðlaunin tvö sem hann vann á leikunum í París en hann hefur unnið gullverðlaun á tveimur síðustu Ólympíuleikum. Getty/Joe Scarnici Hunter Armstrong, tvöfaldur Ólympíugullverðlaunahafi, ætlar að keppa á Steraleikunum, Enhanced Games, í maí næstkomandi, þar sem lyfjanotkun er heimil, samhliða því að stefna að þátttöku á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 2028.
Tilraun Armstrongs til að keppa á báðum mótunum mun reyna á viðleitni Alþjóðasundsambandsins til að draga skýr mörk milli hefðbundins sundheims og Enhanced Games, nýrra samtaka sem leyfa (en krefjast ekki) að íþróttafólk noti mörg þeirra efna sem eru bönnuð í öðrum íþróttagreinum. Hinn 25 ára gamli Armstrong átti áður heimsmet í 50 metra baksundi en hann sagði í samtali við ESPN að hann hygðist keppa um hátt verðlaunafé á Enhanced Games án þess að taka nein bönnuð efni. Armstrong telur að svo lengi sem hann fylgdi áfram lyfjaprófunaráætlun íþróttafólks á vegum Alþjóðasundsambandsins ætti hann áfram að eiga möguleika á sæti í framtíðarólympíuliðum Bandaríkjanna. Armstrong sagði að þátttaka í Steraleiknum væri eini kostur hans til að halda áfram að stunda sund af fullum krafti. Hann sagðist hafa íhugað að hætta keppni síðasta sumar eftir að aðalstyrktaraðili hans sleit skyndilega samstarfinu við hann, sem varð til þess að hann gat ekki greitt reikninga sína. „Ef ég tek ekki þátt í Enhanced Games þá missi ég allt. Ef ég tek þátt í Enhanced Games þá á ég möguleika á að missa ekki allt,“ sagði Armstrong. „Ég var kominn út í horn, svo ég varð að taka upp þetta samtal aftur til að sjá hvort þetta væri raunhæfur kostur,“ sagði Armstrong.
Sund Ólympíuleikar 2028 í Los Angeles Steraleikarnir Mest lesið Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Hjalti stýrir Skagamönnum Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Spurs knúðu fram oddaleik Tilfinningaríkur sigur Littler Dagskráin í dag: Baráttan um þriðja sætið í Bestu deild karla Snýr aftur heim til Víkinga Sabalenka þakklát eftir sigur Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Írar unnu góðan sigur „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Martin valinn mikilvægastur Allegri ráðinn þjálfari Napoli Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Emil Barja tekur við Stjörnunni Aron vildi ráða eftir þrjár æfingar Sigursteinn barðist við tárin Sjá meira