Segir ummæli séra Jakobs kalla á rannsókn lögreglu Smári Jökull Jónsson skrifar 4. mars 2026 12:06 Helga Vala Helgadóttir, ein af flutningsmönnum frumvarps um bann við bælingameðferðum árið 2023, segir ummæli séra Jakobs Rolland kanslara kaþólsku kirkjunnar kalla á rannsókn lögreglu. Vísir/Lýður Valberg/Vilhelm Einn af flutningsmönnum frumvarps um bann við bælingarmeðferðum segir samtöl sem miði að því að breyta kynhneigð einstaklings flokkast sem slík meðferð og ummæli kanslara kaþólsku kirkjunnar í kvöldfréttum Sýnar kalla á rannsókn lögreglu.
Í kvöldfréttum Sýnar var fjallað um viðhorf kaþólsku kirkjunnar til samkynhneiðgra. Var rætt við Séra Jakob Rolland sem sagði það stefnu Jesú Krists að samkynhneigðir þyrftu að breyta kynhneigð sinni. Árið 2023 voru samþykkt lög á Alþingi sem banna hvers konar bælingarmeðferðir sem miða að því að bæla eða breyta kynhneigð einstaklings. „Við verðum að boða það sem kirkjan boðar. Það er bara einfalt. Hvort að það sé löglegt eða ekki löglegt, ég veit um þessi lög frá 2023. Það er ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja. Ég á að segja það sem kirkjan segir mér og það sem Jesús Kristur boðar,“ sagði Séra Jakob í fréttum Sýnar í gær. Helga Vala Helgadóttir, fyrrum þingmaður og ein af flutningsmönnum frumvarpsins um bann við bælingameðferðum á sínum tíma, segir slíkar meðferðir ekki byggðar á læknavísindum og skýrt að íslensk lög séu æðri skoðunum innan kaþólsku kirkjunnar. „Þessi lög sem að Alþingi setti vorið 2023, sem banna bælingarmeðferðir, voru samþykkt nánast einróma og eru í gildi. Ef einhver brýtur þau lög þá má refsa viðkomandi,“ sagði Helga Vala sem nú starfar sem lögmaður. Veistu meira um málið eða hefurðu fréttnæma ábendingu? Sendu okkur fréttaskot hér. „Búinn að játa á sig hegningarlagabrot“ Í viðtalinu sagði séra Jakob engar skipulagðar bælingarmeðferðir vera stundaðar innan kaþólsku kirkjunnar en viðurkenndi að þar ættu sér stað samtöl milli fólks í þá átt. Helga Vala segir það nákvæmlega það sem bælingarmeðferð sé. „Bænir, dáleiðsla, þetta er allt hluti af þessum bælingarmeðferðum. Þannig að það þarf ekkert að vera skipulagt. Ef það er verið að framkvæma þetta þá er þetta brot á lögum, brot á íslenskum hegningarlögum.“ Hún segir ummæli séra Jakobs kalla á rannsókn lögreglu. „Hann lýsti því yfir að þessar meðferðir væru að eiga sér stað hjá þeim og þar með er hann búinn að játa á sig hegningarlagabrot kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Það er auðvitað mjög alvarlegt og ég geri ráð fyrir því að lögreglan fari strax og hefji rannsókn á þessu.“ Hvetur stjórnvöld að framkvæma úttekt Í nefndaráliti meirihlutans um frumvarpið árið 2023, sem Helga Vala flutti, var skorað á dómsmálaráðuneytið að láta framkvæma úttekt á umfangi bælingarmeðferða hér á landi til að halda betur utan um þann hóp sem væri hvað útsettastur. „Styðja við þolendur slíkra meðferða í samráði við heilbrigðis-, barnaverndar- og félagsmálayfirvöld. Ég veit ekki til þess að það hafi verið gert. Ég hvet stjórnvöld til að fara í það strax og þá dómsmálaráðherra til að taka það upp hjá sínu fólki.“ Aðspurð hvort þingmenn hafi á sínum tíma haft veður af því að bælingameðferðir væru stundaðar hér á landi segir hún alltaf vera sögusagnir í gangi. „Það komu nú ekki margar neikvæðar umsagnir inn í nefndina en vissulega einhverjar. Það voru miklu fleiri sem að studdu þetta líkt og umboðsmaður barna og Barnaheill, mannréttindaskrifstofan. Það voru allir fylgjandi því að þetta yrði gert, enda hafa fjölmörg ríki sem við tengjumst farið þessa leið. Þetta er til verndar fólki í viðkvæmri stöðu og löggjafinn var svo sannarlega á því að það yrði að gera hér líka.“ Hún ítrekar að þessar meðferðir séu ekki byggðar á læknavísindum. „Þetta er bara einhver hugmyndafræði og það hefur engin rannsókn átt sér stað sem styður þessar meðferðir. Þvert á móti eru rannsóknir sem sýna að þessar bælingarmeðferðir geta haft óafturkræf áhrif á heilsu og velferð fólks sem sætir þessum meðferðum.“
Jafnréttismál Trúmál Hinsegin Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira