RÚV má gera fleiri auglýsingahlé í hverjum leik á HM Sindri Sverrisson skrifar 5. mars 2026 17:50 Lionel Messi og félagar eiga titil að verja á HM í sumar. Getty/Marc Atkins FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, hefur ákveðið að heimila sjónvarpsrétthöfum að HM karla í fótbolta í sumar að skipta yfir í auglýsingar í nýju hléunum sem gerð verða í bæði fyrri og seinni hálfleik, í öllum leikjum.
Frá þessu greina meðal annars New York Times og ESPN í dag. FIFA tilkynnti í desember að ákveðið hefði verið að hafa þriggja mínútna vatnspásu innan hvers hálfleiks í leikjunum á HM. Ástæðan var þá sögð velferð leikmanna en búast má við miklum hita í að minnsta kosti sumum leikjanna á mótinu sem fram fer í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Þessi mikli hiti setti einmitt svip sinn á HM félagsliða í Bandaríkjunum síðasta sumar þar sem lið gengu jafnvel svo langt að geyma varamenn inni í loftkældum búningsklefa í stað þess að þeir væru að stikna á varamannabekknum. Nú er orðið ljóst að RÚV og aðrir sjónvarpsrétthafar frá mótinu mega gera auglýsingahlé í vatnspásunum í hvorum hálfleik, sem og í hinu hefðbundna hléi á milli hálfleikja. Samkvæmt ESPN geta rétthafar ráðið því hvort þeir halda áfram að sýna frá vellinum í hléunum, með auglýsingar frá samstarfsaðilum FIFA einnig á skjánum, eða hvort þeir gera algjört hlé á útsendingunni og sýna aðrar auglýsingar. ESPN segir jafnframt að auglýsingarnar megi ekki hefjast fyrr en 20 sekúndum eftir að dómarinn flautar til vatnspásu og að þeim verði að ljúka 30 sekúndum áður en leikur hefst að nýju. HM í sumar verður það fjölmennasta frá upphafi. Alls spila 48 lið á mótinu og verða leikirnir 104, frá 11. júní til 19. júlí.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira