Plóma mjólkar mest allra kúa og setti Íslandsmet Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 5. mars 2026 20:06 Plóma, sem mjólkar og mjólkar eins og enginn sé morgundagurinn. Magnús Hlynur Hreiðarsson Kýrin Plóma er engin venjuleg kýr því hún mjólkar svo mikið að sjaldan eða aldrei hefur annað sést hér á landi, enda sló Plóma Íslandsmet í afurðum á síðasta ári. Plóma er líka alltaf í góðu skapi og finnst fátt skemmtilegra en að hoppa og skoppa í fjósinu sínu.
Hér erum við að tala um fjölskyldukúabúið á bænum Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi þar sem eru um 240 kýr og fjórir mjólkurróbótar. Plóma er stjarnan í fjósinu núna því hún var að setja Íslandsmet í afurðum en alls mjólkaði hún tæplega 17 þúsund lítra af mjólk í tólf mánuði og stóran hluta af þeim tíma var hún að mjólka um 50 lítra á dag. Plóma er fædd í nóvember 2020 og hefur átt tvo kálfa síðan, sem báðir voru naut en nú er beðið eftir að kvíga fæðist. Að sjálfsögðu er bóndinn og hans fólk í Gunnbjarnarholti að rifna úr stolti af Plómu. En hverju þakkar hann þennan glæsilega árangur? „Það er náttúrulega bara fyrst og síðast afskaplega gott atlæti og svo er þetta náttúrulega einstakur gripur, sem hefur verið heilsuhraust alla sína ævi og verður vonandi áfram og ætti að vera kominn með fang núna, segir Arnar Bjarni Eiríksson kúabóndi. En hvernig karakter er Plóma? „Það eru eins og þessar góðu kýr eru, hæfilega frek og ekkert ofsalega mannblendin. Þetta er bara öflug skepna, dugleg að éta og dugleg að hvíla sig líka og svo hefur hún mikið pláss til að hreyfa sig þegar henni hentar“, segir Arnar Bjarni. Arnar Bjarni Eiríksson, kúabóndi í Gunnbjarnarholti þar sem eru 240 kýr.Magnús Hlynur Hreiðarsson Íslandsmetið sem Plóma setti eru mestu 12 mánaða afurðir sem íslensk kýr hefur náð. Ef við setjum það í samhengi þá voru meðalafurðir 2025 6.615 lítrar á kú þannig að Plóma mjólkaði hátt í þrisvar sinnum meira en meðalkýrin. Plóma er fædd í nóvember 2020 og hefur átt tvo kálfa síðan, sem báðir voru naut en nú er beðið eftir að kvíga fæðist.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Skeiða- og Gnúpverjahreppur Kýr Landbúnaður Dýr Mest lesið Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Innlent Mótmælendur trufluðu þingfund Innlent Myndataka í lágloftunum vekur athygli Innlent „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Innlent Fleiri fréttir Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Líkamsárás á veitingastað í miðborginni og umfangsmikill þjófnaður Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Fengu innblástur úr Vesturbænum þar sem börn mótmæltu Sjálfsvíg í fangelsum of algeng Afsögn enn ódagsett Sjá meira