Dómari sleginn niður í kvennaleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2026 07:32 Dómarinn Marla Gearhar liggur hér í gólfinu eftir að hafa fengið högg. @espnausnz Nokkrir leikmenn voru reknir út úr húsi í kvennakörfuboltaleik í Bandaríkjunum eftir slagsmál brutust út í annarri umferð Sun Belt-meistaramóts kvenna í Pensacola.
Kvennalið Háskólans í Suður-Alabama í körfubolta spilaði gegn Coastal Carolina en allt varð vitlaust í leiknum þar sem körfuboltakonur slógust á körfuboltavellinum. Myndband af atvikinu fór á flug á netinu en það sýnir Lady Jags-konur í Suður-Alabama stilla upp í sókn og vera yfir með níu stigum í fjórða leikhluta, þegar 5:39 voru eftir á klukkunni. Svo má sjá Cordasiu Harris, númer 22, úr Suður-Alabama, skiptast á orðum við Tracey Hueston, númer 13, úr Coastal Carolina. Hueston snýr sér þá við til að sveifla hnefanum í átt að Harris en tekst ekki betur upp en að hún slær einn dómarann niður í leiðinni. Liðsfélagar Jaguars stukku samstundis upp af bekknum til að skilja þær að. Það má sjá þetta hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by ESPN Aus / NZ (@espnausnz) . Eftir atvikið voru Harris og Hueston reknar út úr húsi. Að auki voru sex aðrir leikmenn Lady Jags reknir út úr húsi fyrir að yfirgefa bekkinn á meðan leik stóð. Annar dómari virtist hafa slasast í átökunum og þurfti á læknisaðstoð frá þjálfurum að halda. Dómarinn sem var sleginn niður heitir Marla Gearhar en hún lá lengi í gólfinu og sneri ekki aftur til að dæma leikinn. Íþróttastjóri Háskólans í Suður-Alabama gaf út yfirlýsingu í kjölfar slagsmálanna. Að sögn íþróttastjórans, dr. Joel Erdmann, munu leikmennirnir Amyah Suton, Daniela Gonzalez og Cordasia Harris ekki fá að spila í næsta leik liðsins. „Háskólinn í Suður-Alabama líður ekki slagsmál undir neinum kringumstæðum. Atvikið sem átti sér stað í leiknum á miðvikudag er afar óheppilegt og óásættanlegt. Við munum nota þetta sem tækifæri til að læra og vaxa í viðleitni okkar til að verða betri í framtíðinni,“ segir í yfirlýsingunni. View this post on Instagram A post shared by WKRG (@wkrg5)
Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira