„Við byrjum seinni hálfleikinn gjörsamlega á hælunum“ Árni Gísli Magnússon skrifar 9. mars 2026 22:58 Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA VÍSIR/VILHELM Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, var eðlilega ekki sáttur eftir fimm marka tap á heimavelli gegn FH í næst síðustu umferð Olís deildar karla. „
Við vorum að byrja þennan leik á flottum krafti og vorum komnir með ágætis stjórn á okkar hlutum, varnarlega kannski sérstaklega í byrjun leiks. Sóknarlega lentum við í smá basli og algjör óþarfi að vera tveimur mörkum undir í hálfleik fannst mér. Við erum með tapaða bolta í fyrri hálfleik þar sem við erum að reyna refsa þeim eftir góða vörn og eigum að gera betur. Svo er seinni hálfleikurinn bara vonbrigði í einu orði.“ FH-ingar fóru með tveggja marka forystu inn síðari hálfleik og skoruðu svo fyrstu fimm mörk seinni hálfleiks sem gerðir verkefnið ærið fyrir heimamenn. „Við byrjum seinni hálfleikinn gjörsamlega á hælunum og það var vont og FH liðið er bara alltof gott lið til að enda sjö mörkum undir, það er nokkuð ljóst.“ Bjarni Ófeigur Valdimarsson hefur verið að glíma við meiðsli en kom aðeins inn á völlinn í dag en það sást langar leiðir að hann er ekki heill heilsu og var Andri næst spurður út í framhaldið hjá honum. „Það verður að taka stöðuna á honum en hann allavega er okkar maður í yfirtölu og átti að spila það í dag og gerði það en það er alltaf hægt að benda á einhverja punkta en hann er ekkert alveg hundrað prósent en hann reyndi og við höldum áfram að reyna gera hann bara hundrað prósent.“ KA mættir grönnum sínum í Þór í risastórum leik í Höllinni á Akureyri á fimmtudaginn kemur í lokaumferð deildarinnar. Þórsarar björguðu sér endanlega frá falli í kvöld en geta enn náð inn í úrslitakeppnina, á meðan KA berst um heimaleikjarétt og því mikið undir. „Það er bara eins og alltaf þegar það er stutt á milli, við þurfum að vera áfram með kassann upp þrátt fyrir að við séum svekktir með okkar frammistöðu í dag, það eru bara hörku möguleikar að komast ágætis sæti í úrslitakeppni í boði fyrir okkur og við þurfum bara að tjasla okkur saman og gera betur enn í dag“, sagði Andri að lokum.
Olís-deild karla KA Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sjá meira