Bergið – rými þar sem ungmenni fá stuðning á sínum forsendum Rut Sigurðardóttir skrifar 10. mars 2026 14:00 Ungmenni eiga að geta leitað eftir stuðningi þegar líðan þeirra fer að versna, án þess að þurfa að bíða mánuðum saman eða sanna að vandinn sé orðinn alvarlegur. Rannsóknir sýna að snemmtækur stuðningur getur haft afgerandi áhrif á líðan og lífsgæði ungmenna og dregið úr líkum á alvarlegri vanda síðar á lífsleiðinni. Til þess þarf að vera til staðar þjónusta sem er aðgengileg og byggir á trausti. Bergið headspace er einmitt slíkur staður. Þar geta ungmenni á aldrinum 12–25 ára komið á eigin forsendum og rætt við fagfólk sem hefur þekkingu og reynslu af líðan ungmenna. Þjónustan er gjaldfrjáls og án tilvísana, ungmenni geta einfaldlega komið og rætt það sem brennur á þeim. Í Berginu eru engar frábendingar. Áhersla Bergsins er að mæta ungmennum þar sem þau eru stödd hverju sinni. Sum leita vegna kvíða eða streitu, önnur vegna einmanaleika eða erfiðra aðstæðna í lífinu. Fyrir mörg er fyrsta skrefið einfaldlega að fá að segja frá og upplifa að einhver hlusti af einlægni og virðingu. Stundum er stærsta forvörnin einfaldlega sú að einhver hlusti. Hluti þeirra ungmenna sem leitar í Bergið hefur upplifað erfiða reynslu í lífinu eða aðstæður sem hafa haft áhrif á líðan þeirra og tengsl við aðra. Rannsóknir sýna að slík reynsla getur haft djúpstæð áhrif á geðheilsu og sjálfsmynd ungmenna. Þegar ungmenni hafa upplifað að tengsl séu hættuleg eða óörugg getur verið erfitt að treysta aftur. Þess vegna skiptir miklu máli að þau fái tækifæri til að sitja með fagaðila í öruggu rými þar sem hægt er að tala um skömmina, óttann og allt það sem getur verið erfitt að segja upphátt. Þar sem einhver hefur úthald til að sitja með þeim í tilfinningunum, hjálpa þeim að skilja þær og finna leiðir til að takast á við þær. Stundum er fyrsta skrefið einfaldlega að fá að segja frá.Stundum er það að fá ný verkfæri til að takast á við líðan sína.Stundum er það að upplifa í fyrsta sinn að tengsl geta verið örugg. Í Berginu ráða ungmennin ferðinni sjálf. Þau geta komið einu sinni eða oftar, rætt það sem þau treysta sér til að segja frá hverju sinni og fengið stuðning á sínum forsendum. Fyrir mörg er það fyrsta skrefið í átt að betri líðan, auknu sjálfstrausti og sterkari tengslum við aðra. Á síðustu árum hefur Bergið smám saman verið að festa sig í sessi sem burðarás í þjónustu við ungmenni á Íslandi. Til þess að slíkt úrræði geti haldið áfram að sinna mikilvægu hlutverki sínu til framtíðar er mikilvægt að tryggja stöðugleika í rekstri með langtímasamningi við ríki og sveitarfélög. Um leið byggir starfsemi Bergsins á breiðum stuðningi samfélagsins. Fjöldi einstaklinga, fyrirtækja og velunnara hefur lagt sitt af mörkum og sá stuðningur hefur skipt sköpum fyrir starfsemina. Við erum afar þakklát fyrir það traust og þann velvilja sem Berginu hefur verið sýndur. Slíkur stuðningur skiptir áfram miklu máli. Með samstilltu átaki hins opinbera og samfélagsins getum við tryggt að ungmenni hafi áfram aðgang að ókeypis, aðgengilegri og mannlegri þjónustu þegar þau þurfa á henni að halda. Því stundum er stærsta forvörnin einfaldlega sú að einhver hlusti. Höfundur er fagstjóri Bergsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar